Önnur störf í norrænu samstarfi
Norrænar stofnanir
Norrænar norrænar stofnanir eru staðstettar vítt og breytt um Norðurlönd. Starfsmenn eru ráðnir beint til stofnananna, nema forstöðumenn stofnana, sem skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar ræður. Starfsmenn stofnananna eru ekki starfsmenn ríkisins, en falla þó undir samninga ríkisstarfsmanna þess lands sem stofnunin er staðsett í. Þetta þýðir meðal annars að starfsmenn eru í lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna og hafa sömu laun og kjör og ríkisstarfsmenn. Allir starfsmenn eru ráðnir á tímabundnum samningum í 4 ár, sem hægt er að framlengja í 4 ár. Hámarks ráðningatími er 8 ár.
Þeir starfsmenn sem flytjast á milli landa til að starfa hjá norrænni stofnun, munu eiga kost á staðaruppbót, flutningsstyrk og fl. skv. sérstökum reglum sem gilda um flutninga milli landa.
Upplýsingaskrifstofurnar í Eystrasaltsríkjunum og Norðvestur-Rússlandi
Forstöðumenn þessara skrifstofa eru ráðnir af skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar og eru á margan hátt tengdir þeim starfskjörum og reglum sem gilda um starfsmenn skrifstofunnar í Kaupmannahöfn. Forstöðumaður skrifstofunnar er ráðinn skv. samningi í 5 ár og á kost á framlengingu í 3 ár, samtals getur starfstími orðið 8 ár.
Starfsmenn skrifstofanna fygja reglum hvers lands fyrir sig og eru ráðnir á staðnum. Starfsmenn skrifstofanna, aðrir en forstöðumenn, eru fastráðnir. Vinnutungumálið er enska eða það tungumál sem talað er á staðnum.
Norden i Fokus
Ráðning til upplýsingaskrifstofanna Norðurlanda í brennidepli fylgir starfskjörum hvers lands og þeirrar stofnunar sem rekur skrifstofuna. Starfsmenn eru verkefnaráðnir og starfa hjá ríkisstofnun eða annarri stofnun á Norðurlöndum. Verkefnaráðinn þýðir að verkefnið greiðir laun og annan kostnað vegna starfsmannsins. Norræna ráðherranefndin veitir fjármagni til verkefnisins.
Verkefnisstjórar vinnuhópa
Fulltrúar norrænu Vinnuhópanna þar með talinn verkefnisstjórinn og formaðurinn, eru yfirleitt embættismenn úr stjórnsýslu norrænu ríkjanna. Hóparnir reka verkefni og kynna norræna samstarfið innan verkefnana.
Ráðning verkefnisstjóra til hinna ýmsu vinnuhópa, er gerð í hverju landi fyrir sig og fylgja starfskjör verkefnisstjóra samningum þeirrar ríkisstofnunar sem þeir starfa hjá. Starfsmenn eru verkefnaráðnir og starfa hjá ríkisstofnun eða annarri stofnun á Norðurlöndum. Verkefnaráðinn þýðir að verkefnið greiðir laun og annan kostnað vegna starfsmannsins.
