Document Actions

Að starfa á skrifstofu Norðurlandaráðs

Skrifstofa Norðurlandaráðs er í Kaupmannahafn og þar starfa tæplega tuttugu manns frá öllum Norðurlöndunum.

Vinnustaður starfsmanna Norðurlandaráðs er í Kaupmannahöfn. Þar eru skrifstofur Norðurlandaráðs, Norrænu ráðherranefndarinnar og Norræna menningarsjóðsins. Fundir eru þó oft haldnir annars staðar á Norðurlöndunum og þar sem löndin skiptast á að fara með formennsku í Norðurlandaráði, er fjöldi funda oft haldinn í því landi sem fer með formennsku hverju sinni. Því má reikna með að starfsfólk Norðurlandaráðs þurfi að ferðast vegna starfa sinna.

Starfsmenn Norðurlandaráðs eru frá öllum Norðurlöndunum og það er mikilvægt að nýtt starfsfólk aðlagist fljótt og vel. Félagslegt samstarf starfsfólks er því mikið. Fyrst og fremst er það starfsfólkið sjálft sem sér um félagsstarfið, en það er styrkt af stofnununum.

Starfsmannafélagið sér um félagsstarfið. Starfsmannafélagið er sameiginlegt fyrir starfsfólk Norðurlandaráðs, Norrænu ráðherranefndarinnar og Norræna menningarsjóðsins. Meðal þess sem boðið er upp á félagsstarfinu eru listsýningar, matur, íþróttir og tónlist. Félagsstarfið er undirstaða aðlögunar og samþættingu nýrra starfsmanna, sem oft flytjast til Kaupmannahafnar án nokkurra félagslegra tengsla.

Fagleg aðstoð við að komast inn í starfið er á höndum reyndra starfsmanna okkar. Séð er til þess að nýir starfsmenn hjá Norðurlandaráði fái starfsmann sem fastan leiðbeinanda fyrstu vikurnar á nýja vinnustaðnum.

Norðurlandaráð er samstarfsvettvangur norrænu þjóðþinganna í Danmörku, Finnlandi, á Íslandi, í Noregi og Svíþjóð; og lögþinga Færeyja og Álandseyja og landsþings Grænlands. Á sama hátt er Norræna ráðherranefndin samstarfsvettvangur norrænu ráðherranna. Í Norðurlandaráði sitja 87 fulltrúar sem skiptast nú í fjóra stjórnmálaflokkahópa. Norrænu þjóðþingin tilnefna fulltrúa í Norðurlandaráð.

Tengt efni
  • Starfsmannasvið (PE) (Samtök)
  • Um norræn starfsmannaskipti

    Í gegnum starfsmannaskipti gefst ríkisstarfsmönnum kostur á að kynna sér stjórnsýslu í öðru norrænu landi/löndum en heimalandi. Hvert þjóðland fyrir sig veitir styrki, greiðir þá út og hefur eftirlit með þeim. Umsækjendur skulu því snúa sér til tengiliða í sínu heimalandi.