Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar
Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar er í Kaupmannahafn og þar starfa tæplega eitt hundrað manns frá öllum Norðurlöndunum.
Norræna ráðherranefndin er samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna. Í Norrænu ráðherranefndinni starfa saman að norrænu samstarfi fulltrúar ríkisstjórna Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar og landsstjórna sjálfstjórnarsvæðanna Grænlands, Færeyja og Álandseyja. . Í Norrænu ráðherranefndinni eru 11 ráðherranefndir. Samstarf þingmanna á Norðurlöndunum fer fram í Norðurlandaráði.
Vinnustaður starfsmanna Norrænu ráðherranefndarinnar er í Kaupmannahöfn. Þar eru skrifstofur Norrænu ráðherranefndarinnar, Norðurlandaráðs og Norræna menningarsjóðsins. Hjá skrifstofunum þremur starfa um það bil 120 manns.
Löndin skiptast á að fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni, það hefur meðal annars í för með sér að fundir eru haldnir í formennskulandinu og því eru margir fundir haldnir annars staðar á Norðurlöndunum. Því má reikna með að starfsfólk Norrænu ráðherranefndarinnar þurfi að ferðast vegna starfa sinna.
Starfsmenn Norrænu ráðherranefndarinnar eru frá öllum Norðurlöndunum og það er mikilvægt að nýtt starfsfólk aðlagist fljótt og vel. Starfsfólki stendur því ýmis félagsleg starfsemi til boða. Þessi starfsemi er að mestu rekin af starfsfólkinu sjálfu, með styrk frá stofnuninni.
Starfsmannafélagið sér um félagsstarfið. Eitt starfsmannafélag er fyrir allar stofnanirnar þrjár, þ.e. Norrænu ráðherranefndina, Norðurlandaráð og Norræna menningarsjóðinn. Meðal þess sem boðið er upp á félagsstarfinu eru listsýningar, matur, íþróttir og tónlist. Allt þetta starf er til þess gert að nýir starfsmenn aðlagist fljótt og vel, þar sem þeir hafa oft engin félagsleg tengsl í landinu.
Faglega aðlögun nýrra starfsmanna sjá reyndir starfsmenn um. Einn af eldri starfsmönnum Norrænu ráðherranefndarinnar er tilnefndur sérstakur tengiliður fyrir hvern nýjan starfsmann.
