Fjöldi norrænna stofnanna býður stúdentum tækifæri til að vinna með námi. .
Reiknað er með að stúdentar sem ráðnir eru í hlutastörf hjá norrænum stofnunum stundi nám við háskóla eða aðra æðri menntastofnun. Einnig er gerð krafa um að viðkomandi sé frá einu Norðurlandanna og tali og skrifi eitt dönsku, norsku eða sænsku reiprennandi. Undantekning er gerð fyrir þá sem starfa við eina af Upplýsingaskrifstofum Norrænu ráðherranefndarinnar í Eystrasaltsríkjunum eða Rússlandi, en þar er vinnutungumálið enska eða tungumál viðkomandi lands.
Verkefnin eru margvísleg. Lögð er áhersla á að störfin séu þroskandiog tengist námi stúdentanna, en hluti verkefnanna felst einnig í þátttöku í almennum skrifstofustörfum.
Vinnutíminn er breytilegur eftir vinnustöðum og er háður reglum í hverju landi fyrir sig, en yfirleitt er um að ræða 1 til 2 daga í viku. Við viljum að stúdentarnir séu sveigjanlegir að vissu marki. Á sama hátt erum við einnig sveigjanleg, til að mynda þegar stúdentarnir lesa fyrir próf.
Hjá skrifstofum Norrænu ráðherranefndarinnar, Norðurlandaráðs og Norræna menningarsjóðnum starfar fjöldi stúdenta í hlutastörfum í ýmsum verkefnum. Ýmist í skilgreindum, afmörkuðum verkefnum eða tilfallandi verkefnum innan deilda.
Öll störf eru auglýst á vefsíðunni norden.org, en einnig má senda inn almenna umsókn, sem skoðuð verður seinna. Umsóknir skal senda til studentjob@norden.org