Document Actions

Alþjóðlegt samstarf

Um alþjóðlegt samstarf
Norðurlandaráð starfar náið með mörgum alþjóðlegum og svæðisbundnum þingmannasamtökum einnig utan Norðurlanda.
Rússland
Norðurlandaráð hefur aukið samstarfið við rússnesku þingin bæði í Norðvestur-Rússlandi og við Ríkisdúmuna og Sambandsráðið í Moskvu. Miðað er að því, meðal annars, að takast á við verkefni á umhverfissviðinu á Eystrasalts- og Barentshafssvæðinu og á Norðurskautssvæðinu.
Eistland, Lettland og Litháen
Markmiðið með samstarfi Norðurlandaráðs við Eystrasaltsráðið er að stuðla að lýðræðislegri, efnahagslegri og menningarlegri þróun á Eystrasaltssvæðinu og Norður-Evrópu og vekja athygli á þeim tækifærum og áskorunum sem svæðið býður upp á.
Eystrasaltssvæðið
Norðurlandaráð hefur stutt við þingmannasamstarf á Eystrasaltssvæðinu í gegnum árlega Eystrasaltsráðstefnu (BSPC) og fastanefnd hennar, sem samræmir starfið á milli ráðstefna.
Grannríki Norðurlanda í vestri
Vestnorræna ráðið sem í sitja fulltrúar Íslands, Færeyja og Grænlands, er samstarfsvettvangur innan norræna samstarfsins, en þar sem ráðið leggur einnig mikla áherslu á samstarf við grannríki Norðurlanda í vestri og á Norðurskautssvæðinu tengist starf ráðsins starfi Norðurlandaráðs út fyrir Norðurlönd. Kanada og Bandaríkin taka þátt í Norðurskautssamstarfinu og Vestnorrænu ríkin hafa unnið að því að efla tengsl við meðal annars Írland og Skotland.
Norðurlandaráð og Hvíta-Rússland
Norðurlöndin vinna að því að efla þróun lýðræðis í Hvíta-Rússlandi í samstarfi við Eystrasaltsríkin. Norðurlandaráð hefur í samstarfi við systursamtök sín, Eystrasaltsráðið, skapað vettvang umræðna með hvítrússneskum stjórnmálamönnum jafnt þingmönnum og fulltrúum stjórnarandstöðuflokka, sem ekki eiga fulltrúa á þinginu.
Norðurlandaráð og Noðurheimskautið
Stór hluti Norðurlandanna og hafssvæðisins er á Norðurheimskautssvæðinu. Norðurlöndin láta sig því málefni þessa einstaka, kaldranalega en einnig viðkvæma svæðis miklu varða. Norðurlöndin starfa saman að því að bæta lífskjör íbúa á norðurslóðum og styrkja félagslega og menningalega þróun á svæðinu.
Norðurlandaráð og Evrópa
Eðlilegt er, vegna landfræðilegrar legu, að Norðurlandaráð taki þátt í þingmannasamstarfi í Norður-Evrópu. En ráðið er einnig í tengslum við aðra hluta Evrópu. Það er hagkvæmt að eiga tengslanet við þingmannasamtök og Norðurlandaráð vill eiga þátt í ákvörðunum um samnorræn hagsmunamál innan ESB, s.s. um Eystrasaltsstefnu ESB. Forsætisnefnd Norðurlandaráðs hefur tilnefnt fulltrúa til að bera ábyrgð á og fylgja eftir norrænum sjónarmiðum, ekki síst gagnvart norrænum fulltrúum á Evrópuþinginu.
Skjöl
Skjöl tengd alþjóðastarfi Norðurlandaráðs.

Tengiliður

Torkil Sørensen
Sími: +45 24 69 94 57
Tölvupóstur: