Eystrasaltssvæðið
Norðurlandaráð hefur stutt við þingmannasamstarf á Eystrasaltssvæðinu í gegnum árlega Eystrasaltsráðstefnu (BSPC) og fastanefnd hennar, sem samræmir starfið á milli ráðstefna.
Samstarfið gefur þingmönnum á svæðinu tækifæri til að vinna saman að sameiginlegum hagsmunamálum. Pólitísk þróun í Evrópu eftir lok kalda stríðsins hefur stuðlað að nýjum pólitískum leiðum og skapað jarðveg til uppbyggingar nýrra samstarfsleiða í Evrópu.
BSPC [en] hefur verið endurskipulagt og styrkt með stækkun fastanefndar, sem jafnframt hefur fengið aukið umboð.
Vægi skýrslugjafa, þemaskýrslna og vinnuhópa er nú enn meira en áður var innan BSPC. Skipaðir hafa verið vinnuhópar um ofauðgun Eystrasaltsins, um orkumál og loftslagsbreytingar, mansal og um vinnumarkaðsmál.
BSPC vinnur náið með ríkisstjórnarsamstarfinu innan Eystrasaltsráðsins (CBSS) [en].
Norðurlandaráð tekur einnig virkan þátt í samstarfinu. Skrifstofa BSPC er tengd skrifstofu Norðurlandaráðs.
