Grannríki Norðurlanda í vestri
Vestnorræna ráðið sem í sitja fulltrúar Íslands, Færeyja og Grænlands, er samstarfsvettvangur innan norræna samstarfsins, en þar sem ráðið leggur einnig mikla áherslu á samstarf við grannríki Norðurlanda í vestri og á Norðurskautssvæðinu tengist starf ráðsins starfi Norðurlandaráðs út fyrir Norðurlönd. Kanada og Bandaríkin taka þátt í Norðurskautssamstarfinu og Vestnorrænu ríkin hafa unnið að því að efla tengsl við meðal annars Írland og Skotland.
Norðurlandaráð vinnur með Vestnorræna ráðinu að mikilvægum málefnum Vestur-Norðurlanda. Á Norðurlandaráðsþingi hefur forseti Vestnorræna ráðsins málfrelsi og tekur þáttí umræðum um málefni sem varða Vestur-Norðurlönd.
