Document Actions

Norðurlandaráð og Evrópa

Eðlilegt er, vegna landfræðilegrar legu, að Norðurlandaráð taki þátt í þingmannasamstarfi í Norður-Evrópu. En ráðið er einnig í tengslum við aðra hluta Evrópu. Það er hagkvæmt að eiga tengslanet við þingmannasamtök og Norðurlandaráð vill eiga þátt í ákvörðunum um samnorræn hagsmunamál innan ESB, s.s. um Eystrasaltsstefnu ESB. Forsætisnefnd Norðurlandaráðs hefur tilnefnt fulltrúa til að bera ábyrgð á og fylgja eftir norrænum sjónarmiðum, ekki síst gagnvart norrænum fulltrúum á Evrópuþinginu.

 

Gegnum samstarfið innan þingmannasamstarfs Eystrasalts (BSPC) hefur Norðurlandaráð
haft tengsl við meðal annarra the Parliamentary Assembly of the Black Sea Economic Cooperation (PABSEC) og the Adriatic-Ionian Initiative (AII). Áhugi er fyrir því á Balkanskaga að kynna sér jákvæða reynslu Norðurlanda af svæðisbundnu samstarfi.

 


 

Tengiliður

Torkil Sørensen
Sími: +45 33 96 04 46
Tölvupóstur: