Norðurlandaráð og Noðurheimskautið
Stór hluti Norðurlandanna og hafssvæðisins er á Norðurheimskautssvæðinu. Norðurlöndin láta sig því málefni þessa einstaka, kaldranalega en einnig viðkvæma svæðis miklu varða. Norðurlöndin starfa saman að því að bæta lífskjör íbúa á norðurslóðum og styrkja félagslega og menningalega þróun á svæðinu.
Markmiðið er að varveita viðkvæma og sérstaka náttúru norðuslóðanna og að tryggja að auðlindir á svæðinu verði nýttar á sjálfbæran hátt með líffræðilegan fjölbreytileika í huga.
Norrænt samstarf hefur varpað ljósi á lífsskilyrði á Norðurheimskautssvæðinu, jafnrétti og efnahagsmál á norðurslóðum. Samstarfið hefur aukið þekkingu á umhverfiseiturefnum, þungmálmum og loftslagsbreytingum við Norðurheimskaut. Norrænn stuðningur við Norðurskautsháskólann [en] hefur aukið tækifæri íbúa á svæðinu til menntunar.
Norrænt samstarf á Norðurheimskautssvæðinu er bæði þingmanna- og ríkisstjórnasamstarf.
Norrænu þingmennirnir ræða málefni Norðurheimskautsins í Norðurlandaráði, auk þess að starfa einnig í fastanefnd Norðurheimskautsþingmanna (SCPAR [en]) um Norðurheimskautssvæðið. Fastanefndin heldur þingmannaráðstefnu annað hvert ár. Fulltrúar í nefndinni eru þingmenn frá sjö heimskautslöndum og Evrópuþinginu. Norðurlandaráð á áheyrnarfullrúa í nefndinni. Norðurlandaráð heldur sérstakan þemafund um málefni norðurslóða í Reykjavík í mars 2012.
Ríkisstjórnarsamstarfið fer fram í gegnum, Norðurskautsráðið [en] og í samstarfi við ESB.
Norðurskautssamstarfið er umfangsmikið og nær til umhverfismála, heilbrigðismála, orkumála, rannsókna, menningar, menntunar, upplýsingatækni, rannsókna og atvinnulífs.
