Rússland
Norðurlandaráð hefur aukið samstarfið við rússnesku þingin bæði í Norðvestur-Rússlandi og við Ríkisdúmuna og Sambandsráðið í Moskvu. Miðað er að því, meðal annars, að takast á við verkefni á umhverfissviðinu á Eystrasalts- og Barentshafssvæðinu og á Norðurskautssvæðinu.
Norðurlandaráð starfar með rússneskum þingmönnum að fjölda mála. Það fyrsta fjallar um samstöðu í Norður-Evrópu. Ólík staða þeirra landa sem tilheyra ESB/EES og þeirra landa sem ekki gera það, eru táknmynd mikils munar í velferð og lífsskilyrðum. Það er mikilvægt fyrir samstarf Norðurlandaráðs við rússneska þingmenn að minnka þennan mun. Þannig verður minni hætta á því að velferðargjáin skapi óþarfa spennu milli ríkja.
Annað mikilvægt málefni eru almenn vandamál sem Norður-Evrópa tekst nú á við. Umhverfismál, ofauðgun Eystrasaltsins, loftslagsbreytingar og lífsskilyrði á Norðurskautssvæðinu og Barentssvæðinu, glæpastarfsemi sem rekin er þvert á landamæri eins og mansal, þróun innviða, heilbrigði og félagsleg velferð auk þróunar lýðræðis með góðum stjórnarháttum og samstarfi við frjáls félagasamtök. Norðurlandaráð gegnir mikilvægu hlutverki við að efla þingtengsl við Rússland, sem gert er með því að taka pólitískt frumkvæði í þessum verkefnum. Norræna víddin, sem nær til Rússlands, ESB, Noregs og Íslands, er mikilvægur rammi þessa samstarfs.
Tengsl Norðurlandaráðs við Rússland ná til rússneska Sambandsráðsins og rússnesku Ríkisdúmunnar (Statsduma á rússnesku) í Moskvu. Fyrsta samstarfsráðstefnan var haldin í Khanty-Mansiysk í Síberíu í júní 2009, og hefur umræðum síðan verið haldið áfram milli þingmanna Norðurlanda og Rússlands. Svæðisbundið samstarf fer fram í gegnum PANWR, sem er þingmannasamband Norðvestur-Rússlands. Norðurlandaráð býður jafnframt PANWR til hefðbundins þings Norðurlandaráðs og PANWR býður Norðurlandaráði til síns þings.
Einnig er unnið í samstarfi við þingmannasamkomuna CIS eða SNG.
Árlega styrkir Norðurlandaráð þingmenn og býður þeim í vikuheimsókn til Norðurlandanna. Frá árinu 2003 hafa styrkirnir að mestu verið nýttir fyrir þingmenn frá Norðvestur-Rússlandi. Árið 2012 sækir hópur þingmanna Ísland heim. Undanfarin ár hafa sendinefndir frá Norðurlandaráði farið í samskonar heimsóknir til Norðvestur-Rússlands. Árið 2012 heimsækir hópur Nenets og Pétursborg.
Í mars 2009 var stofnað til umræðuvettvangs fyrir ungt áhrifafólk í Múrmansk með þátttöku ungra stjórnmálamanna úr Norðurlandaráði. Síðan hafa samskonar fundir verið haldnir árlega fyrir unga stjórnmálamenn frá Norðvestur-Rússlandi og Norðurlöndum. Árið 2012 verður 4. fundurinn haldinn í Stokkhólmi.
