- Info
Sækja um styrki
-
Styrkjaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir frjáls félagasamtök á Eystrasaltssvæðinu
-
Frjáls félagasamtök gegna mikilvægu hlutverki í samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland, til að mynda í umhverfismálum og lýðræðisþróun, en einnig við uppbyggingu tengslaneta og samstarfs þvert á landamæri á Eystrasaltssvæðinu.
-
Mannaskiptaáætlun fyrir atvinnulíf á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum
-
Mannaskiptaáætlunin fyrir atvinnulíf styrkir starfsmenn í atvinnulífinu og iðnaði til námsheimsókna og þjálfunar í öðru ríki, auk þess sem tækifæri gefst til eftirmenntunar og tengslmyndunar. Markmið áætlunarinnar er að styrkja og efla efnahagslegt samstarf, frumkvöðla, svæðisbundið samstarf og nýsköpunartækifæri. Áætlunin er til fimm ára, 2009 til 2013, henni er stjórnað af skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Lettlandi.
-
NORDBUK: Sækja um styrk
-
Norræna barna- og ungmennanefndin (NORDBUK) veitir styrki til félagasamstarfs og verkefna á sviði æskulýðsmála.
-
Mannaskiptaáætlun Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna fyrir opinbera stjórnsýslu
-
Mannaskiptaáætlun Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna fyrir opinbera stjórnsýslu hefur árlega 270.000 evrur til úthlutunar. Styrkir eru veittir til embættismanna og annarra opinberra starfsmanna til námsheimsókna, starfsþjálfunar, þjálfunar og uppbyggingu tengslaneta á svæðinu. Styrkir eru háðir því að þrjú lönd hið minnsta taki þátt í verkefnunum, þar af minnst eitt Norðurland og eitt Eystrasaltsríki.
-
Sækja um styrk til Samstarfsáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar um norðurskautssvæðin
-
Samstarfsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um norðurskautssvæðin úthlutar árlega um 8 milljónum danskra króna. Sækja má um styrki til Samstarfsáætlunar um norðurskautssvæðin til verkefna sem unnin eru á Norðuskautssvæðinu.
-
Norrænt-rússneskt samstarf um menntun og rannsóknir
-
Norræna-rússneska áætlunin veitir styrki til samstarfs og myndunar tengslaneta milli norrænna og norðvestur-rússneskra menntastofnana.. Enn er verið að semja um fyrirkomulag áætlunarinnar milli Norrænu ráðherranefndarinnar og rússneskra stjórnvalda, en auglýst hefur verið eftir umsóknum um undirbúningsstyrki. Samtals eru 2.9 milljónir danskra króna til úthlutunar, umsóknarfrestur rann út 15. desember 2009.
-
Vestnorræni sjóðurinn
-
Vestnorræni sjóðurinn veitir lán til fjárfestinga í fyrirtækjum í Færeyjum og á Grænlandi og einnig til íslenskra fyrirtækja, svo framarlega að um sé að ræða samstarfsverkefni íslensks fyrirtækis og fyrirtækis annað hvort frá Færeyjum eða Grænlandi.
-
Nordforsk: Norræna rannsóknamiðstöðin Áætlun um mannaskipti innan stofnfrumurannsókna
-
Markmiðið með Mannaskipta- og stofnfrumurannsóknaáætlun Nordforsk er að styrkja norrænt samstarf um rannsóknir á stofnfrumum í framtíðinni, með mannaskiptaáætlun fyrir nýja doktora. Einstaklingar með doktorspróf geta sótt um styrki í áætlunina. Umsýslu með flestum styrkjunum hafa háskólar eða rannsóknastofnanir. Umsækjendur skulu vera í samstarfi við háskóla eða aðra rannsóknastofnun í öðru norrænu ríki en heimalandi, þar sem vinna skal í tvö og hálft af þremur starfsárum verkefnisins.
-
NIAS SUPRA áætlunin - Aðgangur stúdenta að Asíu
-
NIAS SUPRA - Stuðningsáætlun um Asíurannsóknir er tengslanet nemenda á Norðurlöndum sem stunda nám í Asíufræðum. Áætlunin veitir styrki og akademíska þjónustu.
