Um alþjóðlegt samstarf
Norðurlandaráð starfar náið með mörgum alþjóðlegum og svæðisbundnum þingmannasamtökum einnig utan Norðurlanda.
Þingmenn í Norðurlandaráði taka sífellt meiri þátt í samstarfi á Eystrasaltssvæðinu, sem er að verða mikill vaxtarbroddur í Evrópu.
Samstarfið við Eystrasaltsríkin þrjú var þegar hafið, áður en þau endurheimtu sjálfstæði sitt sumarið 1991. Samstarfið tók á sig nýja mynd eftir að Eystrasaltsríkin fengu inngöngu í ESB árið 2004, en nánin tengsl eru áfram milli Norðurlandaráðs og Eystrasaltsráðsins.
Norðurlandaráð hefur aukið samstarfið við rússnesku þingin bæði í Norðvestur-Rússlandi og við Ríkisdúmuna og Sambandsráðið í Moskvu. Miðað er að því, meðal annars, að takast á við verkefni á umhverfissviðinu á Eystrasalts- og Barentshafssvæðinu og á Norðurskautssvæðinu.
Undanfarin ár hefur Norðurlandaráð ásamt Eystrasaltsráðinu staðið fyrir umræðum við stjórnmálamenn frá Hvíta-Rússlandi jafnt þingmenn og fulltrúa stjórnarandstöðunnar, sem ekki á fulltrúa á þinginu eins og stendur. Eftir handtökur, meðal annarra forsetaframbjóðenda, fyrir kosningarnar í Hvíta-Rússlandi í desember 2010 hafa opinber tengsl við Hvíta-Rússland verið sett á ís.
Samstarfið við Vestur-Norðurlönd og grannríki Norðurlandanna í vestri er mikilvægt í norrænu samstarfi. Norðurlöndin, þar með talið Grænland eru hluti af Norðurskautssvæðinu. Á nyrstu svæðunum er náttúran einstök en jafnframt mjög viðkvæm fyrir þeim loftslagsbreytingum sem nú verða.
Samstarf Norðurlandaráðs við þýska þingmenn fer að mestu fram í gegnum Þingmannaráðstefna Eystrasaltssvæðisins, BSPC en sambandsþingið, þingið í Berlín og þingin í nyrstu sambandsríkjum Þýskalands eiga þar fulltrúa. Norðurlandaráð og þýska þingið hafa í sameiningu staðið fyrir „Norrænum dögum” í Berlín árin 2001 og 2004.
Samstarf Norðurlandaráðs við pólska þingmenn fer fram í gegnum þingmannasamstarf Eystrasaltsráðstefnunnar, BSPC. Eins er Norðurlandaráð í tengslum við meðal annarra the Parliamentary Assembly of the Black Sea Economic Cooperation (PABSEC) og the Adriatic-Ionian Initiative (AII). Áhugi er fyrir því á Balkanskaga að kynna sér jákvæða reynslu Norðurlanda af svæðisbundnu samstarfi.
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs ræðir samfélagsöryggi og fylgir ábendingum sem koma fram í skýrslu fyrrum varnamála- og utanríkisráðherra Norðmanna, Thorvald Stoltenberg um nánara samstarf um utanríkis- og varnarstefnu, skýrslan var gerð að beiðni norrænu utanríkisráðherrana. Norðurlandaráð styður niðurstöður skýrslunnar, og hvetur norrænu ríkisstjórnirnar til að fylgja eftir þeim tillögum sem þar koma fram.
