Document Actions

Reglur um blaðamannastyrkina

Reglur um blaðamannstyrki Norðurlandaráðs voru samþykktar af Norðurlandaráði árið 1980 og tóku gildi í janúar 1981. Sjá reglur (NStat 80:10). Reglurnar voru endurskoðaðar þann 31. október 1983 (NStat 83:384), þann 2. mars 1986, þann 8. október 2003 og þann 23. september 2005.

Reglugerð um blaðamannastyrki Norðurlandaráðs.

§1

Markmiðið með árlegum blaðamannastyrkjum Norðurlandráðs er að auka áhuga blaðamanna og tækifæri til að lýsa aðstæðum annars staðar á Norðurlöndunum og að skrifa um norrænt samstarf.

§2

Upphæð blaðamannastyrkjanna er ákveðin árlega í tengslum við fjárlagagerð Norðurlandaráðs. Styrkjunum er skipt milli Norðurlandanna fimm, þannig að öll löndin fá jafnan hlut.

§3

Hvert land ákveður hvort styrkurinn er veittur einum eða fleirum blaðamönnum frá dagblaði, tímariti, útvarpi eða sjónvarpi. Sjálfstætt starfandi blaðamenn koma einnig til greina við úthlutun.

Við úthlutun eru blaðamenn, settir í forgang, sem sýnt hafa fram á áhuga á norrænu samstarfi og sem ekki hafa hlotið styrkinn áður.

Styrkurinn er auglýstur á vefsíðu Norðurlandaráðs, www.norden.org og á vefsíðum landanna fimm.

Í umsókn, sem stíla skal á Norðurlandaráð, skal gera grein fyrir því hvernig nýta á styrkinn. Markmið, vinnuáætlun og ferðaáætlun þarf að fylgja umsókn.

§4

Styrkurinn er veittur í hverju landi fyrir sig af fulltrúum þjóðar í Norðurlandaráði í samstarfi við landsskrifstofu og blaðamannasamtök.

Tilkynna skal forsætisnefnd Norðurlandaráðs hverjir hljóta styrkinn í hverju þjóðlandi.

Sendinefnd hvers lands fyrir sig greiðir styrkina út.

§5

Styrkina verður að nýta innan árs frá úthlutun. Auglýsing og úthlutun styrkjana fer fram árlega, á fyrri hluta árs.

Á næsta ári eftir að styrknum var úthlutað skal styrkþegi senda stutta skýrslu til forsætisnefndar Norðurlandaráðs, um það hvernig styrkurinn var notaður

§6

Norðurlandaráð áskilur sér rétt til að nýta efni sem styrkþegi gerir og rekja má til styrksins, án endurgjalds. Upplýsingar um þetta koma fram í auglýsingu um styrki.


 

Tengiliður

Heidi Orava
Sími: +45 33 96 04 60
Tölvupóstur: