Um blaðamannastyrki Norðurlandaráðs
Blaðamannastyrkjum Norðurlandaráðs er úthlutað árlega í öllum norrænu ríkjunum. Styrkjunum er ætlað að veita blaðamönnum tækifæri á að afla sér aukinnar þekkingar á Norðurlöndum og norrænu samstarfi.
Bæði sjálfstætt starfandi og fastráðnir blaðamenn hjá dagblöðum, tímaritum, útvarpi og sjónvarpi geta sótt um styrkina.
Reglur um blaðamannastyrki Norðurlandaráðs voru samþykkar af forsætisnefnd Norðurlandaráðs árið 1980 og tóku gildi í janúar 1981.
Stykina á að nýta innan árs eftir úthlutun, styrkhafi skal skila skýrslu um notkun styrksins í lok styrktímabils. Æskilegt er að skýrslan sé þannig úr garði gerð að hægt sé að birta hana á vefsíðu Norðurlandaráðs.
