Document Actions

Formennskuáætlun í Norðurlandaráði 2009

Formennska Svía í Norðurlandaráði 2009

Á 60. þingi Norðurlandaráðs, sem haldið var í Helsinki 2008, var sænski þingmaðurinn Sinikka Bohlin (s) kjörin forseti Norðurlandaráðs 2009.

Þingmaðurinn Kent Olsson var kjörinn varaforseti.

Nýi forsetinn segir norræna samstarfið vera enn mikilvægara í hnattvæddum heimi.

Norðurlandaráð hefur samþykkt langtíma rammaáætlun "Framtíðarsýn okkar á norrænt samstarf" fyrir störf sín á komandi árum. Með framtíðarsýnina að leiðarljósi munum við leggja áherslu á:

Samstöðu– við búum að sögulegum, menningarlegum og tungumálalegum skyldleika sem við eigum að standa vörð um

Grannríkin– Eystrasaltið, Norðurskautið, Norðvestur-Rússland og þróun Norrænu víddarinnar

Hnattvæðinguna– Norðurlöndin sem alþjóðlegt sigursvæði sem tekur ábyrgð á því að allir geti notið góðs af hnattvæðingunni

Jafnframt ætlum við að

  • efla áhrif þingmannanna á fjármálagerðina
  • gera rekstur stofnunarinnar hagkvæmari, norræna samstarfinu til góðs
  • bæta samræðuna milli Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar
  • auka tengsl norræna samstarfsins inn í þjóðþing okkar
  • auka samstarfið við frjáls félagasamtök

Samstaða

Norðurlöndin eru skyld. Sagan, tungumálið og menningin tengir okkur saman. Við vinnum náið með frjálsum félagasamtökum eins og til að mynda Norrænu félögunum.
Norðurlöndin vinna saman að því að gæta hagsmuna norrænna borgara. Samstarfið byggir á sameiginlegum gildum. Samstarfið á að styrkja samþættingu milli landanna og koma sér vel fyrir almenning.

Okkar framtíðarsýn er

  • að afnema stjórnsýsluhindranir milli landa okkar þannig að auðveldara verði jafnt fyrir fólk og fyrirtæki að fara á milli landa, setjast að, starfa og setja á stofn fyrirtæki
  • að varðveita og þróa norrænu samstöðuna og norrænan tungumálaskilning

Þetta ætlum við gera á formennskuárinu:

  • vera virk í því að ryðja úr vegi stjórnsýsluhindrunum og koma í veg fyrir að nýjar hindranir myndist, með bættu samstarfi og samræmingu lagasetningar á Norðurlöndunum
  • halda upp á merkisárið 1809 með því að halda sumarfundi Norðurlandaráðs í Haparanda/Torneå og leggja þar áherslu á afnám stjórnsýsluhindrana
  • vinna með Norðurlandaráði æskunnar að því að bæta tungumálakennslu í skólum
  • vinna með Tungumálskólanum í Haparanda/Torneå að því að auka tungumálaskilning
  • vinna með upplýsingaskrifstofunni Norðurlönd í brennidepli að því að halda námstefnu um "NORÐURLÖND - framtíða eða saga? til að auka þekkingu á Norðurlöndum

Grannríki

Grannríki okkar eru löndin við Eystrasalt og í Norðvestur-Rússlandi Svæðisbundið samstarf verður stöðugt mikilvægara í norræna samstarfinu og innan Norðurlandaráðs. Þetta á jafnt við um tvíhliða grannríkjasamtarf sem og virka þátttöku í breiðara svæðisbundnu samstarfi, ekki síst innan ramma Norrænu víddarinnar.

Okkar framtíðarsýn er

  • að Norðurlandaráð verði virkur þátttakandi í Eystrasaltssamstarfinu, í vestnorræna, Norðurskauts- og Barentssamstarfinu jafnframt því að vinna náið með Evrópuþinginu.
  • að Norræna víddin verði pólitískur vettvangur, sem styður við samstarfið um sjálfbæra þróun, umhverfismál, velferð og öryggi í Norður-Evrópu. Samstarfið við Rússland, sérstaklega við Norðvestur-Rússland er mikilvægt.
  • að styrkja lýðræðisþróun í grannríkjum okkar.

Þetta ætlum við gera á formennskuárinu:

þróa áfram og efla samstarf þinga og annarra pólitískra stofnana í grannríkjunum

  • setja sameiginlega framkvæmdaáætlun fyrir Norðurlandaráð og Eystrasaltsráðið
  • halda námstefnu í Vilníus í samstarfi við Eystrasaltsráðið og Hvíta-Rússland.
  • taka þátt í umræðufundi með rússneskum þingmönnum
  • taka þátt í þingmannafundi um Norrænu víddina
  • taka þátt í 4. þingmannaráðstefnu Barentsráðsins
  • taka þátt í 18. þingmannaráðstefnu Eystrasaltsráðsins

Hnattvæðing

Hnattvæðingin er bæði áskorun og tækifæri fyrir norræna samstarfið, sem ekki verður eingöngu leyst af einu norrænu ríki. Þess vegna þarf að setja enn samþættara og nánara samstarf Norðurlanda í forgang.

Okkar framtíðarsýn er

  • að hafa áhrif á hnattvæðingarferlið og innihald þess með því að leggja áherslu á menntun, rannsóknir og þróun, frumkvöðlastarf og nýsköpun og endurnýjun með það að markmiði að stuðla að stöðugleika og sjálfbærum hagvexti.
  • að ráðið í heild, bæði forsætisnefndin og aðrar nefndir, taki virkan þátt í því að gera Norðurlöndin að alþjóðlegu sigursvæði í hnattvæddum heimi, öll samstarfssvið geta lagt sitt af mörkum til að gera Norðurlöndin sterk og samkeppnishæf.

Þetta ætlum við gera á formennskuárinu:

  • skýra nánar hnattvæðingaráætlun forsætisráðherranna
  • hafa áhrif á ráðherranefndina og ríkisstjórnir okkar til þess að við verðum með sameiginlega aðgerðaráætlun fyrir leiðtogafundinn um loftslagsmál í haust og
  • sameiginlega norrænan afstöðu bæði innan og utan fundarins
  • taka þátt í Hnattvæðingarstarfi forsætisráðherranna
  • halda námstefnu fyrir leiðtogafundinn um loftslagsmál, í samstarfi við NIB og NEFCO
  • halda námstefnu í samstarfi við Norræna félagið um loftslagsbreytingarnar í Norður-Evrópu og þýðingu þeirra fyrir þróun öryggismála á svæðinu
  • standa fyrir námstefnu í samstarfi við upplýsingaskrifstofuna Norðurlönd í brennidepli og fleiri, um aukið varnarmálasamstarf á Norðurlöndum.

 

Tengiliður

Silje Bergum Kinsten
Sími: +45 33 96 02 51
Tölvupóstur: