Document Actions

Íslendingar í forsæti í Norðurlandaráði árið 2010

Á 61. Norðurlandaráðsþingi sem haldið var í Stokkhólmi árið 2009 var Helgi Hjörvar kjörinn forseti Norðurlandaráðs árið 2010.

Þá var Illugi Gunnarsson kjörinn varaforseti ráðsins árið 2010.

Nýi forsetinn og varaforsetinn þökkuðu fyrir það traust sem Norðurlandaráð sýndi nýja formennskulandinu og sögðu að norrænt samstarf væri sérstaklega mikilvægt á tímum hnattrænna úrlausnarefna og mikilla breytingatíma í norrænu velferðarþjóðfélagi.

Þeir vilja með aðstoð íslensku sendinefndarinnar og í samstarfi við ráðið leggja sitt af mörkum til að gera starf ráðsins árið 2010 eins árangursríkt og kostur er.

Lögð hefur verið fram áætlun þmeð skilgreiningu á þeim málefnum sem lögð verður áhersla á, árið 2010. Áætlunin byggir á langtímaáætlun Norðurlandaráðs, „Norðurlönd og umheimurinn og umheimurinn á Norðurlöndum" og fylgir jafnframt eftir formennskuáætlun Svíþjóðar frá árinu 2009.

Íslenska formennskuáætlunin skiptist í þrjú áherslusvið auk kafla um innri málefni ráðsins. Hnattvæðingin hefur áhrif á öll norrænu ríkin og þess vegna er hnattvæðingin leiðarstef á öllum þremur sviðum. Áherslusviðin þrjú eru:

  1. Öryggi, velferð og menning
  2. Haf, umhverfi og orka
  3. Alþjóðleg tengsl

1. Öryggi, velferð og menning

Norrænt samstarf byggir á sameiginlegri sögu, pólitík og menningu, þar á meðal skyldum tungumálum.

Framtíðarsýn

Framtíðarsýn okkar er að norrænir borgarar búi í öruggu lýðræðislegu velferðarþjóðfélagi. Kunnáttu borgaranna í skandínavískum tungumálum skal haldið við.

Aðgerðir

Á formennskuárinu munum við:

  • berjast gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi, þar á meðal mansali og skipulögðum glæpasamtökum
  • fylgja eftir Stolenberg-skýrslunni og leggja áherslu á málefni sem tengjast þjóðfélagsöryggi og öryggi borgaranna, þar með talið á Norður-Atlantshafi og Norðurskautssvæðinu.
  • stuðla að velferð borgaranna, þar á meðal nýbúa. Leggja áherslu á íbúa strandsvæða auk þess að taka þátt í umræðum um hvernig loftslagsbreytingar, nýjar siglingaleiðir og aukin hætta á umhverfisslysum hafa áhrif á strandbyggðir.
  • stuðla að því að Norðurlönd verði áfram í fremstu röð í jafnréttismálum
  • fylgja eftir yfirlýsingu um norræna tungumálastefnu
  • stuðla að efnahagslegu öryggi, m.a. með því að fjalla um hvaða lærdóm við getum dregið af efnahagskreppum á Norðurlöndum
  • fylgja eftir starfi við afnám stjórnsýsluhindrana

2. Haf, umhverfi og orka

Haf, loftslag og orka eru mikilvægir málaflokkar í norrænni umhverfisstefnu.

Framtíðarsýn

Framtíðarsýn okkar er að það starf sem fer fram á hafinu og við strandsvæði sé umhverfisvænt, að baráttan gegn loftslagsbreytingum sé alþjóðlegt verkefni og að reynt stefnt verð að því að nota sjálfbærar orkulindir.

Aðgerðir

Á formennskuárinu munum við:

  • vinna að þvi að bæta umhverfi sjávar á norrænum siglingaleiðum
  • fylgja eftir niðurstöðum COP 15 ráðstefnunnar í Kaupmannahöfn
  • stuðla að rannsóknum á og nýtingu sjálfbærra orkulinda
  • fylgjast með og reyna að hafa áhrif á endurskoðun fiskveiðistefnu ESB

3. Alþjóðleg tengsl

Norðurlönd eiga sér stað og gegna hlutverki í alþjóðasamfélaginu og í alþjóðlegu samstarfi, þar á meðal á grannsvæðum þeirra.

Framtíðarsýn

Framtíðarsýn okkar er að Norðurlandaráð hafi áhrif á málaflokka og málsmeðferð sem tengist sameiginlegum norrænum málefnum á alþjóðavettvangi.

Aðgerðir

Á formennskuárinu munum við:

  • rækta tengsl og samstarf við grannsvæðin í vestri og austri og jafnframt við þingmannasamtök á þessum svæðum, þar á meðal, SCPAR, Vestnorræna ráðið, BIPA, Eystrsaltsráðið, BSPC, PANWR, Rússneska ríkisráðið, Rússnesku dúmuna, stjórnmálamenn í Hvíta-Rússlandi og þingmannasamtök á Barentssvæðinu auk sambands norrænu félaganna og samtaka frumbyggja á Norðurlöndum.
  • fylgja eftir stefnu Norðurlandaráðs í málefnum ESB
  • stuðla að jákvæðri ímynd Norðurlandan í hnattvæddum heimi

Innri málefni

Norrænt samstarf er í stöðugri þróun, það nýtur almenns stuðnings og áhrif þess á daglegt líf borgaranna eru jákvæð.

Framtíðarsýn

Framtíðarsýn okkar er að norrænt samstarf skipti almenning máli og nái til einstakra borgara á Norðurlöndum.

Aðgerðir

Á formennskuárinu munum við:

  • efla tengsl Norðurlandaráðs og þjóðþinganna ásamt því að auka kynningu á tilmælum ráðsins
  • stuðla að því að festa dag Norðurlandanna 23. mars í sessi, með það að markmiði að beina kastljósinu að Norðurlöndum og norrænu samstarfi
  • stuðla að nútímalegu Norðurlandaráði og norrænu samstarfi

 

Tengiliður

Silje Bergum Kinsten
Sími: +45 33 96 02 51
Tölvupóstur: