Document Actions

Fundir

Finnski samstarfsráðherrann fundar með fulltrúum Norðurlandaráðs æskunnar
Dagsetning 02/11 2011 til 02/11 2011
Alexander Stubb samstarfsráðherra Finna, fundar með fulltrúum Norðurlandaráðs æskunnar á Norðurlandaráðsþinginu 2011.
Norðurlandaráðsþing æskunnar dagana 28.-30. október 2011, Kaupmannahöfn
Dagsetning 28/10 2011 til 30/10 2011
Árlegt Norðurlandaráðsþing æskunnar verður að þessu sinni haldið í Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn, Danmörku. Hefð er fyrir því að þingið er haldið helgina fyrir Norðurlandaráðsþing. Þetta árið hefst þingið með námstefnu föstudaginn 28. október. Þema þingsins í ár og námstefnunnar er Eystrasaltið og mannréttindi.
Námstefna: Mannréttindi á Eystrasaltssvæðinu
Dagsetning 28/10 2011 til 28/10 2011
Norðurlandaráð æskunnar og ungliðahreyfing Norrænu félaganna (FNUF) standa fyrir námstefnu um mannréttindi á Eystrasaltssvæðinu. Rætt verður um manréttindi frá þremur sjónarhornum: réttindi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks, mansal, og réttindi verkamanna á vinnumarkaði. Námstefnan er opin almenningi og aðgangur er ókeypis.
Norðurlandaráðsþing æskunnar 2010
Dagsetning 29/10 2010 til 31/10 2010
Norðurlandaráðs æskunnar (UNR) heldur árlegt þing sitt dagana 29.-31.10.2010 i Reykjaví, Íslandi. Þingið er haldið helgina fyrir Norðurlandaráðsþing. Þema ársins verður "Ungt fólk og vinnumarkaðurinn".
Ráðstefna fyrir unga þingmenn og stjórnmálamenn í Vilníus
Dagsetning 03/06 2010 til 04/06 2010
Youth empowerment and young people’s participation in society - Tækifæri ungs fólks til að taka þátt í mótun samfélagsins verða í brennidepli á ráðstefnu Norðurlandaráðs fyrir unga þingmenn og stjórnmálamenn í Vilníus í Litháen. Frjáls för yfir landamæri, vegabréfsáritanir og áhrif ungs fólka í gegnum Netið og samskiptavefi eru nokkur þeirra mála sem fjallað verður um. Markmiðið er að skrifa ályktun sem svarar eftirfarandi spurningum: Hvernig má tryggja áhrif ungs fólks í samfélaginu, hverjar eru hindranirnar og getum við lært af reynslu hvers annars?
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs æskunnar fundar í Noregi
Dagsetning 12/04 2010 til 12/04 2010
 

 

Tengiliður