Document Actions

Um þingin

Norðurlandaráð æskunnar (UNR) heldur árlegt þing sitt í tengslum við Norðurlandaráðsþing um mánaðamót október, nóvember. Á þinginu koma saman norrænir ungliðar sem láta sig stjórnmál skipta til að ræða mál sem efst eru á baugi í norrænu samstarfi.

Þátttakendur eru fulltrúar norrænna ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkanna og norrænna pólitískra regnhlífasamtaka.

Ungmennaráð í þjóðlöndunum og æskulýðsdeild Sambands Norrænu félaganna (FNUF) eiga einnig áheyrnarfulltrúa á þingunum.

Norðurlandaráðsþing æskunnar dagana 28.-30. október 2011, Kaupmannahöfn
Dagsetning 28/10 2011 til 30/10 2011
Árlegt Norðurlandaráðsþing æskunnar verður að þessu sinni haldið í Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn, Danmörku. Hefð er fyrir því að þingið er haldið helgina fyrir Norðurlandaráðsþing. Þetta árið hefst þingið með námstefnu föstudaginn 28. október. Þema þingsins í ár og námstefnunnar er Eystrasaltið og mannréttindi.
Norðurlandaráðsþing æskunnar 2010
Dagsetning 29/10 2010 til 31/10 2010
Norðurlandaráðs æskunnar (UNR) heldur árlegt þing sitt dagana 29.-31.10.2010 i Reykjaví, Íslandi. Þingið er haldið helgina fyrir Norðurlandaráðsþing. Þema ársins verður "Ungt fólk og vinnumarkaðurinn".
Norðurlandaráðsþing æskunnar 2009
Dagsetning 23/10 2009 til 25/10 2009
Norðurlandaráðsþing æskunnar 2009. Norðurlandaráð æskunnar (UNR) heldur árlegt þing sitt dagana 23. - 25.10.2009 í Stokkhólmi, Svíþjóð. Þingið er haldið helgina fyrir Norðurlandaráðsþing. Þema ársins verður Norðurlöndin og framtíðin.
Norðurlandaráðsþing æskunnar 2008
Dagsetning 24/10 2008 til 26/10 2008
Norðurlandaráð æskunnar (UNR) heldur árlegt þing sitt dagana 24.-26. 10. í Hanaholmen - menningarmiðstöð fyrir Svíþjóð og Finnland í Esbo, Finnlandi. Þingið er haldið helgina fyrir Norðurlandaráðsþing. Þema ársins verður loftslag og orka.
Norðurlandaráðsþing æskunnar 2007
Dagsetning 27/10 2007 til 29/10 2007
Hefð er fyrir því að Norðurlandaráðs æskunnar haldi árlegt þing sitt áður en Norðurlandaráðsþing fer fram (30.10.-1.11.2007) um mánaðmótin október-nóvember.. Í ár verður þingið haldið í Stórþinginu í Ósló í Noregi. Þingið stendur yfir frá laugardeginum 27.10. til mánudagsins 29.10.2007
Norðurlandaráðsþing æskunnar 2006
Dagsetning 27/10 2006 til 29/10 2006
 
Norðurlandaráðsþing æskunnar 2005
Dagsetning 22/10 2005 til 24/10 2005
52 ungliðar tóku þátt í umræðum á þinginu þar sem meðal annars var rætt um pólitísk mál á döfinni, norrænt samstarf og umhverfismál. Lagðar voru fram 16 ályktunartillögur á þindinu og voru 9 samþykktar. Kjörin var ný forsætisnefnd fyrir árið 2006.
Norðurlandaráðsþing æskunnar 2004
Dagsetning 29/10 2004 til 31/10 2004
Svíþjóð fer með formennsku í Norðurlandaráði í ár og verður því Norðurlandaráðsþing æskunnar haldið í sænska þinginu í Stokkhólmi. Þingið verður haldið helgina fyrir Norðurlandaráðsþingið sjálft, þ.e. dagana 29. - 31.10.2004. Meginþema þingsins í ár er "Vellíðan barna og unglinga og jöfn tækifæri fyrir allt ungt fólk". Við reiknum með 50 þátttakendum frá Norðurlöndunum og sjálfstjórnarsvæðunum.
Norðurlandaráðsþing æskunnar 2003
Dagsetning 28/10 2003 til 29/10 2003
 
Norðurlandaráðsþing æskunnar 2002
Dagsetning 25/10 2002 til 27/10 2002
 
Norðurlandaráðsþing æskunnar 2001, 26.-28. október
Dagsetning 26/10 2001 til 28/10 2001
Norðurlandaráð æskunnar (UNR) heldur árlegt þing sitt í tengslum við þing Norðurlandaráðs. Á þinginu fá ungliðar tækifæri til að ræða um norræn málefni sem skipta þá máli og sem eru ofarlega á baugi.
Norðurlandaráðsþing æskunnar 2000
Dagsetning 03/11 2000 til 05/11 2000
 

 

Tengiliður