Um Norðurlandaráð æskunnar
Norðurlandaráð æskunnar er vettvangur pólitískra æskulýðssamtaka á Norðurlöndunum. Í ráðinu gefst pólitískum ungliðum kostur á að skiptast á hugmyndum og framtíðarsýn og taka þátt í því að koma óskum unga fólksins á dagskrá í norræna samstarfinu.
Allt frá stofnun Norðurlandaráðs árið 1952 hafa ungir stjórnmálamenn sýnt starfi ráðsins mikinn áhuga. Norðurlandaráð æskunnar (UNR) hélt í upphafi eina námstefnu á ári. Árið 1971 var fyrsta eiginlega þing UNR haldið og árið 2002 varð UNR að sjálfstæðri stofnun.
Erik Winther Paisley, forseti Norðurlandaráðs æskunnar 2011.
Norræn rödd æskunnar
Norðurlandaráð æskunnar lítur ekki á sig sem viðhengi í norrænu samstarfi, heldur sem mikilvægan hluta þess.
UNR kemur málefnum unga fólksins á Norðurlöndunum á dagskrá. UNR vinnur að því að auðvelda aðgang að menntun og störfum á Norðurlöndunum. Að því að bæta mennta- og starfstækifæraáætlanir eins og Nordjobb og Nordplus [en]. Og að því að gefin verði út sameiginleg norræn stúdentakort sem veiti afslátt á öllum Norðurlöndunum.
En UNR tekur ekki einungis á málefnum sem snerta ungt fólk. UNR hefur til að mynda í mörg ár unnið að því að efla norræna samstöðu um umhverfis- og loftslagsmál. UNR hefur til að mynda í mörg ár unnið að því að efla norræna samstöðu um umhverfis- og loftslagsmál. Auk þess hefur UNR bent á mikilvægi þess að norrænar opinberar sjónvarpsstöðvar séu aðgengilegar öllum á Norðurlöndunum.
Stofnun með eigin viðhorf
UNR leggur að sjálfsögðu áherslu á að taka á vanda unga fólksins á Norðurlöndunum, en mikilvægt er að gera sér grein fyrir að UNR er ekki hagsmunasamtök. UNR er pólitískur vettvangur sem ekki alltaf tekur samdóma ákvarðanir. Þetta felur í sér að ályktanir UNR eru stundum umdeildar.
Þetta er styrkur UNR þar sem það heldur samtökunum lifandi og áhugaverðum og eykur tækifæri UNR til að skapa umræður meðal norrænna stjórnmálamanna.
Til að mynda hefur UNR oft samþykkt ályktanir sem styðja réttindi samkynhneigðra og gagnrýnt Færeyjar fyrir að standa ekki vörð um þessi réttindi Árið 2006 samþykkti UNR ályktun um að taka ætti upp hvalveiðar aftur byggðar á sjálfbærum skilyrðum.
Tungumál á dagskrá
UNR hefur margoft bent á að stöðugt verður erfiðara fyrir ungt fólk á Norðurlöndunum að skilja hvert annað. UNR vill því efla kennslu í norrænum tungumálum.
Fullrúar UNR eru meðal þeirra sem upplifa tungumálavandann. Hann skapar vandamál í stofnun þar sem allir ættu að eiga jafnan rétt á að taka þátt og leggja sitt af mörkum. Þar sem UNR hefur takmarkað fjármagn til túlkunar og þýðinga, hefur forsætisnefnd UNR því talið nauðsynlegt að skoða möguleikann á því að enska verði vinnutungumál ráðsins til jafns við norrænu tungumálin.
Norðurlandaráð æskunnar skiptir máli
UNR viðrar fyrst og fremst skoðanir sínar og afstöðu fyrir fulltrúum í Norðurlandaráði. Fulltrúar forsætisnefndarinnar taka þátt í fundum nefnda Norðurlandaráðs. Forseti Norðurlandaráðs æskunnar heldur ræðu á þingi Norðurlandaráðs.
Samþykktum UNR er dreift í Norðurlandaráði, og þær geta orðið umræðugrundvöllur meðal ungra stjórnmálamanna á Norðurlöndunum.
