Document Actions

Um flokkahóp miðjumanna

Í flokkahópi miðjumanna í Norðurlandaráði sitja fulltrúar og varafulltrúar Norðurlandanna og sjálfstjórnarsvæðanna, sem tilheyra frjálslyndum miðjuflokkum, grænum og kristilegum demókrataflokkum.

Í flokkahópnum eru fulltrúar 17 flokka frá öllum Norðurlöndunum. Flokkahópur miðjumanna er breiðasti flokkahópurinn í Norðurlandaráði.

Formaður flokkahópsins er Siv Friðleifsdóttir  fulltrúi Framsóknarflokksins, Íslandi. Varaformaður er Anders Andersson frá Kristilegum demókrötum (KD) í Svíþjóð. Terhi Tikkala er framkvæmdastjóri flokkahóps miðjumanna.

Kjörnir fulltrúar í Norðurlandaráði geta myndað flokkahópa. Í flokkahópi verða að vera að minnsta kosti fjórir fulltrúar, sem eru frá tveimur löndum hið minnsta.

Tengiliður

Terhi Tikkala
Sími: +358 9 432 2559