Samkvæmt 64. grein Helsinki-sáttmálans skal ráðherranefndin fara að tillögum ráðsins um ráðstöfun fjár innan þess fjárlagaramma sem settur hefur verið.
Það er verkefni forsætisnefndarinnar að undirbúa tillögur ráðherranefndarinnar um norrænu fjárlögin. Forsætisnefndin skipar fjárlaganefnd til að vinna tillögurnar, í fjárlaganefnd sitja fulltrúar allra flokkahópa í Norðurlandaráði. Fulltrúum sendinefnda einstakra landa er einnig heimilt að taka þátt í starfi fjárlagahópsins, óski þeir þess.
Fjárlagahópurinn safnar saman áliti nefnda og flokkahópa og breytingatillögum þeirra vegna fjárlagagerðarinnar, með það að markmiði að leggja fram sameiginlega fjárlagatillögu ráðsins. Eftir það sér fjárlagahópurinn um að ná samkomulagi við Norrænu ráðherranefndina um tillögur ráðsins. Þegar samkomulag hefur náðst um fjárlagagerðina, leggur fjárlagahópurinn fram drög að nefndaráliti um ráðherranefndartillögu um fjárlög fyrir forsætisnefndina.
Fjárlagahópurinn heldur yfirleitt fundi sína í tengslum við fundi ráðsins, en þegar unnið er að samkomulagi um fjárlagarammann fundar hópurinn oftar.