Document Actions

Um forsætisnefnd Norðurlandaráðs

Pólitísk stjórn Norðurlandaráðs, forsætisnefndin, ber ábyrgð á umfangsmiklum pólitískum málum, skipulagningu og fjárhagsáætlunum auk utanríkis- og varnarmálasamstarfi þjóðþinganna.

Forsætisnefnd Norðurlandaráðs er æðsta ákvörðunarvaldið milli árlegu fundanna, þinganna og má taka ákvarðanir fyrir hönd ráðsins. Forsætisnefndin stýrir og samræmir starf allra nefnda og ráða ráðsins, ber ábyrgð á umfangsmiklum pólitískum og stjórnsýslulegum málum, gerir framkvæmdaáætlun og fjárhagsáætlun og ber ábyrgð á umfangsmiklum málefnum sem snerta utanríkis- og varnarmál.

Forsætisnefndin getur skipað undirnefndir eða vinnuhópa, áheyrnarfulltrúa og eftirlitsaðila um sérstök málefni í afmarkaðan tíma. Þetta á við um Fjárlagahópinn sem ræðir við Ráðherranefndina um norrænu fjárlögin.

Fundir forsætisnefndarinnar eru ekki opinberir, en forsætisnefndin getur leitað eftir aðstoð utan frá til að leysa samstarfsmál eða haldið námstefnur til að kanna skoðanir eða taka þátt í umræðum um norræn málefni, til þessara viðburða er boðið bæði fagfólki og gestum.

Tengingar við þjóðirnar og á alþjóðavettvangi

Forsætisnefndin ber einnig ábyrgð á samræmingu tengsla við þjóðþing og aðrar svæðisbundnar og alþjóðlegar stofnanir. Forsætisnefndin hefur sérlega mikið samstarf við Eystrasaltsráðið, sem er vettvangur þingsamstarfs Eistlands, Lettlands og Litháens.

Öll lönd og flokkahópar ættu að taka þátt

Ellefu fulltrúar sitja í forsætisnefndinni auk forseta og varaforseta. Öll lönd og flokkahópar ættu að eiga þar fulltrúa. Fulltrúarnir eru kjörnir á hefðbundnu þingi ráðsins, sem haldið er á haustin, til eins árs í senn. Forsetinn og varaforsetinn eru frá því landi sem verður gestgjafi hefðbundna þingsins á því ári sem þeir sinna starfinu.

Tillögu sem lögð er fram af fulltrúa eða flokkahópi er visað til nefnda eða forsætisnefndar til umfjöllunar. Forsætisnefndin getur valið að senda tillöguna til umsagnar hjá ýmsum aðilum í löndunum eða afla upplýsinga á annan hátt til stuðnings eða á móti tillögunni.

Forsætisnefndin má taka ákvarðanir í stað þingsins

Tillögur forsætisnefndarinnar sem nefnast álitsgerðir eru lagðar fyrir þingið, til ákvörðunar um hvað skuli leggja til við norrænu ríkisstjórnirnar eða Norrænu ráðherranefndina. Í einstökum tilvikum má forsætisnefndin taka ákvörðun í stað þingsins. Þetta getur til að mynda átt við málefni sem forsætisnefndin vill að tekið sé á eins fljótt og unnt er.

Tengiliður

Tina Bostrup
Sími: +45 24 69 94 52
Tölvupóstur: