Pólitískt samstarf innan fagsviða fer að mestu fram í fimm fagnefndum Norðurlandaráðs og stjórn þeirra forsætisnefndinni.
Fjallað er um öll pólitísk fagleg málefni, nema utanríkis- og öryggismál, sem forsætisnefndin er ábyrg fyrir, í einhverri af fimm fagnefndum Norðurlandaráðs.
Tillögu sem lögð er fram af fulltrúa eða fulltrúahópi er vísað áfram til umfjöllunar hjá fagnefnd. Nefndin getur til að mynda valið að senda tillöguna til umsagnar hjá ýmsum aðilum í löndunum, haldið fyrirspurnartíma með sérfræðingum eða leitað upplýsinga á annan máta til stuðnings eða gegn tillögunni.
Tillaga nefndarinnar, sem nefnist álitsgerð, er send til stjórnarnefndar Norðurlandaráðs, forsætisnefndar eða er lögð fyrir árlegu fundina: vorþingið og hefðbundna þingið, til ákvörðunar um hvað skuli leggja til við norrænu ríkisstjórnirnar eða hvernigNorræna ráðherranefndin eigi að bregðast við tillögunni.
Nefnd getur einnig leitað upplýsinga til að ákveða hvort ástæða er til þess að leggja fram tillögu um sameiginlegar norrænar aðgerðir. Nefndin getur sett á laggirnar undirnefndeða vinnuhóp um sérstök málefni í afmarkaðan tíma. Nokkrir fulltrúar í nefndinni geta tekið að sér að kynna sér mál sérstaklega áður en nefndin tekur ákvörðun um framhald og hvort vinna eigi tillögu um málið. Einnig má fela undirnefnd eða vinnuhópi það verkefni að vinna tillögu fyrir nefndina. Nefndir standa stundum fyrir námstefnum og ráðstefnum til að vekja athygli á málefni eða til að taka þátt í umræðum um norræn mál á döfinni.
Í hverri nefnd Norðurlandaráðs sitja 13 - 15 fulltrúar, þar með taldir formaður og varaformaður. Fundir nefnda eru ekki opnir almenningi. Ráðstefnur og námstefnur eru þó opnar öðrum en fulltrúum nefnda og boðsgestum.
Nefndir Norðurlandaráðs starfa með nefndum þinga þjóðlandanna og með nefnd Eystrasaltasríkjanna Eystrasaltsráðinu, sem er þingsamstarfsvettvangur Eistlands, Lettlands og Litháen, og með öðrum alþjóðlegum nefndum og ráðum.
Eftirlitsnefnd starfar einnig innan Norðurlandaráðs, meginverkefni hennar er að hafa eftirlit með starfinu og sameiginlegum fjármálum Norðurlandanna og fylgjast með því að ákvörðunum sem teknar eru sé fylgt eftir. Auk þess starfar innan ráðsins kjörnefnd, en hún undirbýr kosningar sem fram fara á þingum Norðurlandaráðs.
Forseti, varaforseti og fulltrúar í nefndir, í forsætisnefnd, í eftirlitsnefnd og fulltrúar í kjörnefndina eru kosnir á hefðbundnu þingi Norðurlandaráðs, sem haldið er að hausti, fyrir næsta ár.