Skrifstofa Norðurlandaráðs undirbýr og fylgir eftir málum sem fjallað er um í forsætisnefndinni, nefndum og í öðrum stofnunum.
Skrifstofa Norðurlandaráðs hefur aðsetur í Kaupmannahöfn á sama stað og skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar.
Skrifstofan undirbýr og fylgir eftir málum sem fjallað er um í stjórnunarnefndum Norðurlandaráðs, forsætisnefndinni og fagnefndum.
Starfið er unnið í samráði við flokkahópana og skrifstofur sendinefnda landanna.
Skrifstofan undirbýr og sér um, í samráði við sendinefnd gestgjafalandsins, tvo árlega fundi vorþing að vori og hefðbundið þing að hausti, auk þess að sjá um skráningu þess sem fram fer á þinginu.
Aðrir fundir ársins eru undirbúnir af skrifstofu gestgjafalandsins í samstarfi við skrifstofu Norðurlandaráðs.
Reglur um starf skrifstofunnar eru settar af forsætisnefndinni sem einnig formlega ræður starfsfólk skrifstofunnar.
Daglegum störfum skrifstofunnar er stýrt af framkvæmdastjóra Norðurlandaráðs en annað starfsfólk telur um 15 manns frá öllum Norðurlöndunum og Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum.
Framkvæmdastjórinn ber ábyrgð á starfinu í forsætisnefndinni og hefur sér til aðstoðar tvo starfsmenn.
Hver nefnd hefur einn eða tvo starfsmenn, sem sjá um undirbúnining, framkvæmd og eftirfylgni starfa nefndarinnar.
Á skrifstofunni er einnig skrifstofa fyrir Eystrasaltsráðstefnuna (BSPC).
Norðurlandaráð rekur sameiginlega upplýsinga- og samskiptadeild með Norrænu ráðherranefndinni.
Stjórnsýslu- og lagasvið (AJ)
Norrænu ráðherranefndarinnar sér einnig um starfsmannamál, efnahagsmál og þjónustu við skrifstofu Norðurlandaráðs.