Varaforseti Norðurlandaráðs er kjörinn til eins árs í senn Varaforsetinn kemur frá sama landi og forsetinn.
Varaforseti Norðurlandaráðs er kjörinn á hefðbundna þinginu, sem haldið er á haustin. Fulltrúi frá því landi sem næst skal halda Norðurlandaráðsþing getur orðið varaforseti.
Formennskan eins og þinghaldið er á höndum landanna til skiptis eftir sérstakri reglu þar sem Danmörk er fyrst, þá Finnland, Noregur, Svíþjóð og Ísland.
Varaforsetinn stjórnar fundum forsætisnefndar í fjarveru forsetans. Að öðru leyti skipta varaforseti og forseti starfinu með sér og varaforseti ber ábyrgð á undirbúningi forsætisnefndarfunda og annarra funda, þar á meðal dagskrá, sem ákveðin er í samvinnu viðframkvæmdastjóra þegar forseti forfallast.
Varaforseti aðstoðar forsetann hvað varðar tengsl við þjóðþingin, grannsvæðin og ýmis alþjóðleg samtök.
Varaforsetinn og forsetinn skipta með sér fulltrúastörfum fyrir Norðurlandaráð.