Document Actions

Nefndir

Pólitískt samstarf um einstök málefni fer að mestu fram í fimm fagnefndum Norðurlandaráðs og í forsætisnefndinni sem er stjórnarnefnd allra nefndanna.
Um nefndir Norðurlandaráðs
Pólitískt samstarf innan fagsviða fer að mestu fram í fimm fagnefndum Norðurlandaráðs og stjórn þeirra forsætisnefndinni.
Menningar- og menntamálanefndin
Menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs fjallar um og gerir tillögur að pólitískum aðgerðum á sviði menningar og menntunar, þar á meðal mál er varða tungumálasamstarf, nýja miðla, færniþróun og nýsköpun á sviði menntunar.
Borgara- og neytendanefndin
Borgara- og neytendanefndin fjallar um málefni sem snerta réttindi borgaranna og neytenda auk meginþátta sem snerta lýðræði, mannréttindi, jafnrétti o.fl. og sem tengjast starfsvettvangi hennar.
Umhverfis- náttúruauðlindanefndin
Umhverfis- og náttúruauðlindanefndin vinnur að því að viðhalda og þróa umhverfisvitund á Norðurlöndum
Efnahags- og viðskiptanefndin
Efnahags- og viðskiptanefndin fjallar um efnahagsumhverfi, rannsóknir, framleiðslu og verslun, þar með talið frelsi á markaði og atvinnumarkaði á Norðurlöndum.
Velferðarnefndin
Velferðarnefndin vinnur með norræna velferðarlíkanið, velferð, heilbrigðis- og félagsmálastefnu
Eftirlitsnefndin
Eftirlitsnefndin fylgist fyrir hönd þingsins með starfsemi sem fjármögnuð er úr sameiginlegum sjóðum Norðurlandanna.
Kjörnefndin
Í kjörnefnd eru sjö fulltrúar. Kjörnefnd undirbýr og gerir tillögur að kjöri sem fram fer á þingi.