Ísland á aðild að Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni. Í Norðurlandaráði sitja 7 íslenskir fulltrúar af 87 og í Norrænu ráðherranefndinni á Ísland fulltrúa í öllum fagráðherranefndunum tíu og í hópi samstarfsráðherranna. Ísland á fulltrúa í nokkrum stjórnum norrænna stofnana sem heyra undir ráðherranefndina.