Document Actions

Þingið 2009

Norðurlöndin og ESB voru þema Norðurlandaráðsþingsins 2009 í Stokkhólmi, þessi mál voru einnig ofarlega á dagskrá leiðtogafundar norrænu forsætisráðherranna og formanna stjórnarandstöðuflokkanna og í tillögum þingmanna til ríkisstjórnanna.

Temamöte 2004
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Stoltenberg skýrslan um aukið norrænt varnar- og öryggissamstarf var í brennidepli í umræðunum. Utanríkisráðherrarnir lýstu því meðal annars yfir að þeir teldu umræðuna um utanríkis- og varnarmál Norðurlanda vera virkari og áhugaverðari nú en hún hefði verið í mörg undanfarin ár.

Forsætisráðherrarnir lögðu áherslu á að grænn hagvöxtur, norrænar öndvegisrannsóknir og nýjar aðgerðir á sviði loftslags-, umhverfis- og orkumála væru framtíðin í norrænu samstarfi, og það fæli í sér að leggja yrði enn frekari áherslu á hnattvæðingarstarfið.

Þingmenn í Norðurlandaráði lýstu því yfir á þinginu að fíkniefni ætti alls ekki að leyfa á Norðurlöndum. Þeir beindu sjónum að neytendamálum og beindu tilmælum til Norrænu ráðherranefndarinnar um að opna norræna upplýsingaskrifstofu í Hvíta-Rússlandi.

Helgi Hjörvar, Samfylkingunni, var kjörinn forseti Norðurlandaráðs árið 2010. Helgi Hörvar lýsti því yfir að hann myndi leggja áherslu á öryggismál á öllum sviðum, baráttuna gegn skipulagðri glæpastarfsemi og mansali, efnahagslegu samstarfi og loftslagsmálum, auk þeirra hefðbundnu öryggismála sem fjallað er um í skýrslu Stoltenbergs.