Document Actions

Norðurlandaráðsþing 2011

Norræn samstaða var sterk á fundi norrænu forsætisráðherranna með þingmönnum frá öllum Norðurlöndum á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn dagana 1. - 3. nóvember 2011.

Christiansborg
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar í Noregi þann 22. júlí, funduðu sterkir og samstíga Norðurlandabúar um pólitísk málefni undir yfirskriftinni Opið norrænt samfélag.

„Víðsýni er kjarnagildi í norrænu samfélagi. Víðsýni gagnvart umheiminum, víðsýni gagnvart borgurunum, frelsi til að velja, og viljinn til að ræða og vinna saman er undirstaða norræna líkansins", sagði Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Dana.

Endurskipulagning starfsaðferða Norðurlandaráðs var eitt af þeim stóru málum sem rædd voru á þinginu í Kaupmannahöfn. Samþykktin um að nútímavæða starfið og gera það pólitískara felur meðal annar í sér að frá og með 1. janúar 2012 verður heimilt að veita áheyrnarrétt í Norðurlandaráði. Það þýðir að borgararnir geta óskað eftir fundi með nefndum Norðurlandaráðs til að ræða einstök mál eða koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Bertel Haarder, forseti Norðurlandaráðs 2011, lýsti í ræðu sinni von um að með nýjum starfsaðferðum yrði norrænt samstarf pólitískara, gengi betur í framtíðinni og sýnilegt borgurunum.

Sjálfbær heilsa og þol gegn sýklalyfjum voru til umræðu á hliðarviðburði en í honum tóku meðal annars þátt Mette Gjerskov, matvælaráðherra Noregs, norski þingmaðurinn Martin Kolberg og fjöldi sérfræðinga.

Á hátíðlegri verðlaunahátíð í Konunglega danska tónlistarháskólanum tók Pernilla August við Kvikmyndaverðlaunum Norðurlandaráðs, Gyrðir Elíasson Bókmenntaverðlaununum og Mats Gustafsson Tónlistarverðlaununum. Scandic hótelin fengu Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2011.

Finninn Kimmo Sasi (Saml) var kjörinn forseti Norðurlandaráðs 2012 og Silvia Modig (Vas.) varaforseti.

Hefst
01/11 2011
Endar
03/11 2011
Staðsetning
Kristjánsborgarhöll, Kaupmannahöfn
Danmörk

Tengiliðir

Tengt efni
  • Norðurlandaráð

    Norðurlandaráð er opinber starfsvettvangur þingsamstarfs á Norðurlöndunum.


 

Tengiliður

Birthe Lien
Sími: +45 24 69 94 43
Tölvupóstur: