Document Actions

Um erindi

Erindi eru þau mál sem tekin eru til meðferðar í norræna kerfinu. Til eru ýmsar tegundir erinda. Sem dæmi má nefna tillögur frá þingmönnum eða ráðherranefndum, framkvæmdaáætlanir og umsagnir um tillögur.

Ákvarðanir þingsins eru nefndar þingsályktunartillögur. Ráðherranefndirnar eiga síðan að finna leið til þess að hrinda ályktunum þingsins í framkvæmd. Ákvarðanir um innri málefni varða norræna kerfið.

Þingmenn geta jafnframt lagt fram bæði skriflegar og munnlegar (á Norðurlandaráðsþingi) fyrirspurnir til einnar eða fleiri ríkisstjórna eða ráðherranefnda.

Í erindaskránni eru öll þau mál sem eru til umfjöllunar í norræna kerfinu.. Þar er að finna tillögur frá þingmönnum og ráðherranefndum, framkvæmdaáætlanir og umsagnir um tillögur. Í erindaskránni er jafnframt að finna ályktanir Norðurlandaráðsþings. Þeim er beint til ráðherranefnda eða ríkisstjórna Norðurlanda. Í skránni koma einnig fram ákvarðanir um innri málefni og skriflegar og munnlegar fyrirspurnir. Þegar þingmenn telja að afgreiðslu máls sé lokið er það fjarlægt af erindaskránni.   

Tengiliður

Birthe Lien
Sími: +45 24 69 94 43
Tölvupóstur: