Document Actions

Um Norðurlandaráð

Norðurlandaráð var stofnað 1952. Í ráðinu sitja 87 þjóðkjörnir fulltrúar, frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum.

Session
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Fulltrúarnir eru þingmenn á þjóðþingum landanna og eru þeir valdir af þingunum í samræmi við tillögur flokkahópanna. Fulltrúar í Norðurlandaráði eru ekki kjörnir í beinum kosningum.

Norðurlandaráð sem er stjórnað af forsætisnefnd, kemur saman á haustfundi sem nefndur er Norðurlandaráðsþing þar sem norrænir þingmenn taka ákvarðanir um þau mál sem þeir vilja að ríkisstjórnir Norðurlandanna finni lausn á.

Á þinginu er einnig kosinn forseti, varaforseti og fulltrúar í forsætisnefnd fyrir komandi ár. Formennskan skiptist á milli landanna. Norðurlandaráðsþing er haldið í því landi sem fer með formennsku.

Stjórnmálastarf Norðurlandaráðs fer fram í nefndum og flokkahópum.

Norðurlandaráð fær þjónustu frá skrifstofu sem er hýst á sama stað og skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnart í Kaupmannahöfn. Þar að auki eru skrifstofur þjóðlandanna sem staðsettar eru í þingum hvers lands fyrir sig.

Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefind reka sameiginlegt Stjórnsýslu- og lagasvið (AJ).

Ráðin eru jafnframt með sameiginlegt upplýsingasvið.


 

Tengiliður

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur