Document Actions

Aðildarlönd og -svæði

Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur, Svíþjóð, Grænland, Færeyjar og Álandseyjar eru í Norðurlandaráði.

Danmörk, Ísland, Noregur og Svíþjóð gerðust aðilar að Norðurlandaráði þegar það var stofnað árið 1952. Finnland gerðist aðili árið 1955, Færeyjar og Álandseyjar árið 1970 og Grænland árið 1984.

Í ráðinu eru 87 kjörnir fulltrúar. Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð eiga 20 fulltrúa hvert, þar af eru tveir af fulltrúum Danmerkur frá Færeyjum og tveir frá Grænlandi, en tveir af fulltrúum Finnlands eru frá Álandseyjum. Ísland á sjö fulltrúa.

Færeyjar, Grænland og Álandseyjar hafa fengið meira vægi í norrænu samstarfi síðan Álandseyja-yfirlýsingin var samþykkt af samstarfsráðherrunum í Maríuhöfn á Álandseyjum þann 5. september 2007.


 

Tengiliður

Heidi Orava
Sími: +45 33 96 04 60
Tölvupóstur: