Document Actions

Almennt um náttúru- og umhverfisverðlaunin

Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs voru sett á laggirnar til að efla vitund um náttúru- og umhverfisvernd á Norðurlöndunum. Þau hafa verið veitt frá árinu 1995 og eru afhent við sama tækifæri og önnur verðlaun Norðurlandaráðs.

Ann-Cecile Norderhaug
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Náttúru- og umhverfisverðlaunin eru veitt norrænni stofnun, fyrirtæki eða einstaklingi, sem sett hefur fordæmi með því að samþætta virðingu fyrir náttúru og umhverfi í starfi sínu, eða með því að sýna frumkvæði á annan hátt að sértækum aðgerðum náttúru og umhverfi til góða.

Þriggja þrepa val á verðlaunahafa

Val á verðlaunahafa náttúru- og umhverfisverðlaunanna er þriggja þrepa ferli. Í fyrsta þrepi geta stofnanir og einstaklingar á Norðurlöndunum tilnefnt einhverja þá sem þeir telja að uppfylli þær kröfur sem settar eru fyrir þema ársins. Um getur verið að ræða orkusparnað, sjálfbær samfélög eða varðveislu menningarlandslags.

Í næsta þrepi eru valdir fulltrúar sem komast áfram í næstu umferð frá norrænu ríkjunum og Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum. Dómnefnd í hverju landi eða sjálfstjórnarsvæði tilnefnir í hæsta lagi tvö innlend verkefni.

Dómnefndir í þjóðlöndum gera tillögu um hverjir komast í úrslit

Ákvörðun um hverjir komast áfram í þriðju umferð - lokalotu - og hver hlýtur verðlaunin, er tekin af norrænni dómnefnd en í henni eiga sæti 13 fulltrúar, tveir frá hverju Norðurlandanna og einn frá Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum. Þessir fulltrúar landanna og sjálfstjórnarsvæðanna Færeyja, Grænlands og Álandseyja ásamt varamönnum sínum skipa dómnefndir ríkjanna og sjálfstjórnarsvæðanna.

Tilkynnt er um verðlaunahafa a.m.k. tveimur vikum fyrir afhendingu

Dómnefndin skal tilkynna ákvörðun sína um hver hlýtur verðlaunin í síðasta lagi tveimur vikum fyrir afhendingu. Venjulega er tilkynnt um verðlaunahafann að vori til. Verðlaunin eru afhent við sérstaka hátíðarathöfn á sama tíma og önnur norræn verðlaun fyrir bókmenntir tónlist og kvikmyndir við hátíðlega athöfn á Norðurlandaráðsþingi, sem haldið er á haustin.

Verðlaunaafhending á þinginu

Náttúru- og umhverfisverðlaunin, eru eins og verðlaunin fyrir bókmenntir, tónlist og kvikmyndir 350.000 danskar krónur (um það bil 47.000 evrur). Norska sendinefndin í Norðurlandaráði, sem hefur aðsetur í norska Stórþinginu hefur umsjón með verðlaununum.

Verðlaunahafar

Meðal þeirra sem hlotið hafa Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs eru, norsku umhverfissamtökin Bellona, grænlensku umhverfissamtökin Inuit Circumpolar Conference, Skrifstofa staðardagskrár 21 Álandseyjum, Umhverfisbaráttumaðurinn Bogi Hansen frá Færeyjum og sveitarfélagið Albertslund  í Danmörku, þrír norrænir bankar, auk Scandic hótelanna.


 

Tengiliður

Michael Funch
Sími: +45 33960332
Tölvupóstur: