Samþykktir
Samþykktir um Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs
1. Almenn ákvæði
Náttúru og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs voru stofnuð af ríkisstjórnum Norðurlandanna í samræmi við meðmæli Norðurlandaráðs nr. 13/1995.
Tilgangur Náttúru- og umhverfisverðlaunanna er að vekja athygli á starfi að náttúru- og umhverfisverndarmálum á Norðurlöndum.
2. Skilyrði Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs
Verðlaunin eru veitt árlega.
Verðlaunin eru veitt norrænu fyrirtæki, samtökum, fjölmiðli eða einstaklingi, sem verið hefur til fyrirmyndar um það að gera tillit til náttúru og umhverfis að eðlilegum þætti í rekstri sínum eða starfi eða sem á annan hátt hefur lagt mikið af mörkum til náttúrunnar eða umhverfisins.
3. Dómnefndin
Dómnefnd, sem í eru 13 almennir fulltrúar, velur verðlaunahafa. Í dómnefndinni eru tveir fulltrúar frá hverju Norðurlandanna og einn frá hverju sjálfstjórnarsvæðanna. Fyrir hvern fulltrúa er skipaður varamaður.
Nefndarmenn og varamenn þeirra eru skipaðir af Norrænu ráðherranefndinni til fjögurra ára í senn, að tillögu ríkisstjórnanna. Helmingur nefndarmanna og varamanna eru skipaðir í tvö fjögurra ára tímabil.
4. Starfsemi
Dómnefndin velur sjálf formann og varaformann. Fulltrúar hvers lands og varamenn þeirra skipa nefnd hvers þjóðlands. Í nefnd hvers sjálfstjórnarsvæðanna sitja fulltrúi og varamaður.
Dómnefndin er ákvörðunarhæf þegar fulltrúar frá öllu löndum eru viðstaddir, sbr. lið 4 að neðan.
Einfaldur meirihluti ræður ákvörðunum dómnefndar. Hver fulltrúi hefur eitt atkvæði. Ef atkvæði eru jöfn ræður atkvæði formanns.
Rituð er fundargerð um fundi dómnefndarinnar.
Ein af skrifstofum Norðurlandaráðs sér um skrifstofuhald fyrir dómnefndina.
5. Tilnefningaraðferð
Dómnefndin tekur ákvörðun um veitingu verðlauna á grundvelli tilnefninga frá þeim nefndum sem nefndar eru í lið 4. Dómnefnd hvers lands getur mælt með tveimur mögulegum verðlaunahöfum og hvert sjálfstjórnarsvæði einum.
Ákvörðun um að veitingu verðlaunanna skal tekin samkvæmt nánari reglum, sem samþykktar eru Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni, sbr. viðauka 1.
Nefndir þjóðlandanna og sjálfstjórnarsvæðanna skulu fyrir þann 15. júní senda upplýsingar um mögulega verðlaunahafa til allra annarra nefnda.
Dómnefndin skal tilkynna ákvörðun sína um val á verðlaunahafa ásamt rökstuðningi til forsætisnefndar Norðurlandaráðs að minnsta kosti tveimur vikum áður en verðlaunaafhendingin fer fram.
6. Fjárhagur
Norræna ráðherranefndin ákvarðar til fjármagn til verðlaunanna í samnorrænum fjárlögum.
Upphæð Náttúru- og umhverfisverðlaunanna er ákveðin í tengslum við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Fjárhagsár starfsemi dómnefndarinnar fylgir samnorræna fjárhagsárinu.
Dómnefndin skal senda tillögu að fjárveitingu til málefnisins, þar á meðal tillögu að fjárhagsáætlun, til Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir þann 1. ágúst ár hvert.
Dómnefndin ber ábyrgð á fjármálastjórn málefnisins í samstarfi við skrifstofu sína.
Uppgjör reikninga og umsýsla með fjármagn skal vera í samræmi við norrænar reglur um fjárhagsáætlanagerð, meðferð fjár, bókhald og endurskoðun og auk þess í samræmi við ákvarðanir Norrænu ráðherranefndarinnar.
Skattlagning Náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs fer fram eftir sömu reglum og gilda fyrir önnur heiðursverðlaun, þar á meðal Bókmennta- og Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs.
Þessar samþykktir tóku gildi þann 1. mars 1995. Þeim var síðast breytt af umhverfisráðherrunum þann 5. maí 2001.
