Verðlaun Norðurlandaráðs fyrir barna- og unglingabókmenntir eru vinsæl utan Norðurlanda, þrátt fyrir að þau hafi enn aldrei verið veitt (verða veitt 30. október á Norðurlandaráðsþinginu í Ósló). Bókasýningar í Bologna, Frankfurt, Leipzig, Berlín, London, Gautaborg og Búkarest eru allar áhugasamar um nýju verðlaunin og það lofar góðu um sýnileika verðlaunanna og þar með sýnileika norrænna barna- og unglingabókmennta almennt bæði innan og utan Norðurlanda. Tilkynnt verður hverjir eru tilnefndir til verðlaunanna 2013 þann 29. maí á bókmenntahátíðinni í Lillehammer í Noregi.


