Document Actions

Isela Valve

Isela Valve: Joels färger, 2011

Álenski listamaðurinn og rithöfundurinn Joel Pettersson (1892-1937) var módernisti löngu áður en orðið varð þekkt sem hugtak.

Hann gerði á eigin hátt uppreisn gegn ríkjandi reglum og kerfi með frjálsri sköpun sem ekki var metið að verðleikum fyrr en mörgum áratugum eftir andlát hans. Fyrirmynd hans er umhverfið, umhverfis heimabæinn Norrby, „gráa bæinn“ þar sem hann endurskapar samskipti við menn, dýr og hluti með sjaldgæfu ímyndunarafli.  Málfarslega séð tengir hann alþýðufrásagnir sem einkennast af kjarnamikilli mállýsku og mergjuðu skopskyni, við hástemmt biblíukennt ávarp. Bæklingar hans, sem skrifaðir voru fyrir ungmennafélagið í sókninni, eru alþýðugamanleikir með sálfræðilegri dýpt undir fyndinni atburðarásinni. Í málverkum sínum þróar hann persónulegan expressjónisma sem hefur gefið honum viðurnefnið „van Gogh Álandseyja“.

Lífið sem bóndi veitir honum innblástur en það er eingöngu í draumum og sýnum sem hann lifir í raun. Efnishyggja „bókstafsraunveruleikans“ kvelur hann, hann finnur innst inni hvernig hlutirnir gætu verið öðruvísi. Að lokum reynist það honum um megn að sameina ímyndun og harðan raunveruleikann og hann rekst inn í sálarlegt myrkur þar sem geðsjúkrahúsið í Grelsby verður hans endastöð.

Joel Petterson segir oft frá æsku sinni. Hann sleppir aldrei upphaflegu barnseðli sínu. „Ég vil hoppa. Ég vil dansa. Og ég mun halda huga mínum opnum og sléttum eins og huga barns“.

Þetta fjallar Isela Valve um í myndabók sinni „Joels färger“, sem tilnefnd er af sjálfstjórnarsvæðinu Álandseyjum til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2013. Hún lýsir á nýstárlega hátt heillandi örlögum manns. Málverk Pettersons - með sínum jarðbundnu litbrigðum - eru stöðug uppspretta samræðu listamannsins og áhorfenda hans; klippitækni sem gefur ímyndunarafli áhorfandans lausan taum. Hversdagurinn er grár, en með penna sínum og pensli töfrar listamaðurinn fram nýjan heim, fullan af töfrum. Ljósu litirnir endurspegla gleði sólarljóssins, þeir dökku persónugera óttann við nótt dauðans.

Í verkum Isela Valve - sex barnabókum og mörgum sjálfsævisögulegum fullorðinsbókum - er „Joels färger“ hápunktur listamannsferils hennar, þar sem stuttur textinn með lýrískum hljómi sínum veitir boðskap myndanna meiri dýpt. Bókin er fyrst og fremst ætluð litlum börnum, en einstaklingar á öllum aldri geta lesið hana sér til gagns og gamans.

Gustaf Widén