'62
'63
'64
'65
'65
'66
'67
'68
'69
'70
'71
'72
'73
'74
'75
'76
'77
'78
'79
'80
'81
'82
'83
'84
'85
'86
'87
'88
'89
'90
'91
'92
'93
'94
'95
'96
'97
'98
'99
'00
'01
'02
'03
'04
'05
'06
'07
'08
'09
'10
'11
Tilkynnt um verðlaunahafa bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs þann 22.mars n.k.
Þann 22. mars tilkynnir dómnefndin hver hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2012.
-
Frækorn í jörðu, freðinn blómdraumur, fyrirheit um ilm að fjötri leystum,- 1976 Ólafur Jóhann Sigurðsson, Ísland: Að laufferjum og Að brunnum
-
En þá gerðist það að vart varð lífs á skipinu. Eitthvað bærði á sér í myrkurkrikanum við skutinn, bakborðsmegin, en þangað varð komist eftir gangvegi sem lá milli skipssíðunnar og þrefaldra tunnuhlaðanna. Þaðan bárust andvörp og stunur - og járnskeljaglamur.- 2005 Sjón, Ísland: Skugga-Baldur
-
Ég finn höfuðverkinn ágerast; þennan sama höfuðverk og læknar höfðu rannsakað nokkrum árum áður og Auðunn andalæknir tjáð sig um. En nú er hann enn magnaðri. Ég ligg stífur. Ég get ekki hreyft mig tímunum saman.- 1995 Einar Már Guðmundsson, Ísland: Englar alheimsins
-
„Hvaða blaðafargan er þetta?“ og ég hrökk upp, sá blöðin fossa úr kjöltunni á mér beint í hendur Mörtu. „Komdu með þetta!“ sagði ég snöggt og greip út eftir þeim, röddin hvassari en ég ætlaði mér.- 1992 Fríða Á. Sigurðardóttir, Ísland: Meðan nóttin líður
-
Mér fannst ég kannast við manninn, en áttaði mig ekki strax á honum. Svo rann skyndilega upp fyrir mér ljós. Þetta var August Strindberg.- 2011 Gyrðir Elíasson, Ísland: Milli trjánna
-
Og hreindýramosinn lýsir umhverfis hið næsta, ljósgráhvítur með fjólubláfölum tilbrigðum. Ofar kom í mýri með grashólmum. Þar eru seytlur og dý með mosa, og snarrót. Fífusund.- 1988 Thor Vilhjálmsson, Ísland: Grámosinn glóir
-
Hljóð er náttborgin löng strætin þar sem ekki er grænt ljós nema í eina átt- 1981 Snorri Hjartarson, Ísland: Hauströkkrið yfir mér
