Um bókmenntaverðlaunin
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs eiga að stuðla að auknum áhuga á bókmenntun og tungumálum grannlandanna. Verðlaununum er úthlutað um leið og öðrum verðlaunum Norðurlandaráðs þ.e. tónlistarverðlaunin, kvikmyndaverðlaunin og náttúru- og umhverfisverðlaunin .
Per Petterson, handhafi Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2009.
- Ljósmyndari
- Magnus Fröderberg/norden.org
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt allt frá árinu 1962, þau eru veitt fyrir fagurbókmenntir sem ritaðar eru á norrænu tungumáli. Það geta verið skáldsögur, leikrit, ljóða-, smásagna- eða ritgerðasöfn og önnur bókmenntaverk.
Markmið verðlaunaveitingarinnar er að auka áhuga Norðurlandabúa á bókmenntum og tungumáli nágrannalandanna og á sameiginlegri menningararfleifð Norðurlanda.
Norræn dómnefnd velur verðlaunahafann
Norræn dómnefnd, sem skipuð er af Norrænu ráðherranefndinni velur verðlaunahafa bókmenntaverðlaunanna. Yfirleitt fer valið fram í upphafi árs. Í dómnefndinni sitja tveir fulltrúar frá hverju Norðurlandanna.
Annar finnski fulltrúinn skal vera finnskumælandi og hinn sænskumælandi. Fulltrúar í nefndinni skulu vera sérfræðingar í bókmenntum eigin lands og eins vel að sér og unnt er, í bókmenntum grannlandanna.
Ef tilnefnd eru verk frá Færeyjum, Grænlandi eða samíska tungumálasvæðinu eru fulltrúar þessara svæða tilkallaðir.
Dómnefndir þjóðlandanna tilnefna bókmenntaverk
Fulltrúar landanna og varamenn þeirra skipa dómnefnd, sem tilnefna að hámarki tvö bókmenntaverk fyrir 1. desember.
Norræna dómnefndin skal tilkynna hver hlýtur verðlaunin og gera grein fyrir niðurstöðu sinni í síðasta lagi tveimur vikum fyrir afhendinguna.
Verðlaun afhent á Norðurlandaráðsþingi
Einvörðungu er hægt að tilnefna bókmenntaverk sem gefin hafa verið út í fyrsta sinn á undanförnum tveimur árum, nema um sé að ræða verk sem gefin eru út á öðru tungumáli en dönsku, norsku eða sænsku, þá mega hafa liðið fjögur ár frá fyrstu útgáfu.
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs eru yfirleitt afhent um leið og önnur norræn verðlaun en þau eru fyrir tónlist, kvikmyndir náttúru- og umhverfisvernd við sérstaka athöfn á árlegu þingi Norðurlandaráðs, þinginu, sem haldin eru á haustin.
Það er skrifstofa sænsku sendinefndarinnar í sænska sendinefndin Norðurlandaráði sem fer með umsýslu verðlaunanna, skrifstofan hefur aðstöðu í sænska þinginu Verðlaunin eru eins og önnur verðlaun 350.000 danskar krónur (um 47.000 evrur).
Þekktir verðlaunahafar
Margir þekktir rithöfundar hafa hlotið bókmenntaverðlaunin, meðal þeirra eru Väinö Linna frá Finnlandi, Ivar Lo-Johansson frá Svíþjóð, Einar Már Guðmundsson frá Íslandi, Dorrit Willumsen frá Danmörku og Jan Kjærstad frá Noregi .
