Reglur
Reglugerð þessi tekur gildi þ. 25.5. 1996 og falla þá úr gildi ákvarðanir frá 1961 ásamt breytingum frá 1964, 1971, 1983, 1984 og 1990.
§ 1. Almennar ákvarðanir
Nordiska rådets litteraturpris har instiftats av de nordiska ländernas regeringar i enlighet med Nordiska rådets rekommendation nr. 1/1961.
Medel för verksamheten anvisas av Nordiska ministerrådet inom dess budget för nordiskt kulturellt samarbete.
Litteraturprisets storlek fastställs i samband med behandlingen av budgeten.
§ 2. Verðlaunaverkið
Verðlaununum er úthlutað árlega í tengslum við Norðurlandaráðsþing. Verðlaunin eru veitt fyrir fagurbókmenntir skrifaðar á einu af norrænu tungumálunum.
Hér er um að ræða fagurbókmenntir þ.e. skáldsögur, leikrit, ljóða-, smásagna- eða ritgerðasöfn og önnur bókmenntaverk sem hafa mikið bókmenntalegt og listrænt gildi.
Við val á verðlaunaverki er litið til verka sem hafa verið gefin út í fyrsta skipti á síðustu tveimur árum. Ef um er að ræða verk á öðru tungumáli en dönsku, norsku eða sænsku þá er litið til síðustu fjögurra ára.
§ 3. Dómnefndin
Dómnefnd velur það verk sem verðlauna skal. Þessi dómnefnd er samsett af 10 föstum meðlimum, tveimur frá Danmörku, Finnlandi ( einum frá hverju málsvæði), Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Auk þess eru ráðnir fulltrúar í dómnefndina frá Færeyjum, Grænlandi og samíska málsvæðinu ef tilefni er til.
Norræna ráðherranefndin velur föstu meðlimina ásamt einum varamanni frá hverju landi til fjögurra ára í senn Skipta skal um helming föstu meðlimanna og alla varamennina eftir fjögur ár. Enginn fastur meðlimur eða varamaður skal sitja nema tvö fjögurra ára tímabil.
Fastir meðlimir og varamenn nefndarinnar þurfa að vera sérfróðir um bókmenntir lands síns og einnig í ríkum mæli um bókmenntir grannlandanna Til þess er ætlast að nefndin fylgist vel með bókmenntum þeirra málsvæða sem ekki eiga fasta fulltrúa í nefndinni og viðhaldi sambandi við trausta kunnáttumenn á hlutaðeigandi málsvæði.
§ 4. Starfsemi [sv]
Kommittén väljer själv ordförande och vice ordförande.
I varje land bildar de två ordinarie medlemmarna tillsammans med suppleanten en nationell bedömningskommitté.
Dómnefndin tekur ákvarðanir þegar fulltrúar frá öllum þátttökulöndunum eru til staðar og í þeim tilfellum þegar ráðnir fulltrúar samkvæmt grein 5 hér að neðan eru viðstaddir.
Einfaldur meirihluti ræður niðurstöðu dómnefndar. Hver og einn meðlimur hefur eitt atkvæði. Ef atkvæðin falla jöfn gildir atkvæði formannsins nema þegar um er að ræða atkvæðagreiðslu um verðlaunin þá er vandamálið leyst með hlutkesti.
Dómnefndin fundar einu sinni á ári.
Fundargerð er rituð á fundum nefndarinnar. Formaður þarf að samþykkja fundargerð.
§ 5. Tilnefningaferlið
Dómnefndin tekur ákvörðun um verðlaunahafa eftir að hafa fengið tillögur frá nefndum hverrar þjóðar fyrir sig.
Hver og ein af þjóðanefndunum getur í mesta lagi stungið upp á tveimur verkum. Fyrir utan þessi í mesta lagi 10 verk er einnig hægt að tilnefna eitt verk á færeysku, eitt á grænlensku og eitt á samísku. Tilnefning færeyskra, grænlenskra og samískra verka er unnin af viðurkenndum rithöfundasamböndum þessa svæða.
Ef tilnefnt er verk skrifað á færeysku, grænlensku eða samísku þá ber að ráða fulltrúa frá viðurkenndu rithöfundasambandi þess svæðis í dómnefndina. Í þannig tilfellum tekur ráðinn fulltrúi þátt í starfi nefndarinnar á sömu forsendum og fastir fulltrúar nefndarinnar.
Sérhver þjóðanefnd og rithöfundasambandið í Færeyjum, á Grænlandi ásamt því á samíska málsvæðinu skal senda þrjú eintök af þeim verkum sem stungið er upp á fyrir 1. desember til sérhverrar þjóðanefndar og rithöfundasambandanna í Færeyjum, á Grænlandi og þess á samíska málsvæðinu.
Ef verk sem stungið er upp á er ekki til á dönsku, norsku eða sænsku þá ber viðkomandi þjóðarnefnd eða rithöfundasambandi Finnlands, Íslands, Færeyja, Grænlands og samísku málsvæðanna í samráði við aðalskrifstofu viðkomandi lands að sjá um að góð þýðing á verkinu birtist á einu af þremur ofannefndra tungumálanna..
Dómnefndinni ber að tilkynna rökstudda ákvörðun sína til forsætisnefndar Norðurlandaráðsins í síðasta lagi tveimur vikum fyrir þá tímasetningu sem valin hefur verið fyrir úthlutun verðlaunanna.
§ 6. Stjórn og fjármál
Sænsk sendinefnd Norðurlandaráðsins hefur yfirumsjón með aðalskrifstofu dómnefndarinnar. Fjarhagsár fyrir starfsemi dómnefndarinnar er það sama og almanaksárið.
Dómnenfndin skal
- ákveða fjárhagsáætlun fyrir starfsemina og er ábyrg í samvinnu við aðalskrifstofu fyrir fjárhagsstjórn ásamt því
- að setja árlega fram áætlun um starfsemina til Norðurlandaráðs.
Reikningsskil skulu gerð í samræmi við norrænar reglugerðir um fjárhagsáætlun, fjárstýringu, reikningshald og endurskoðun í samræmi við það sem ráðherranefndin annars ákveður.
