Tilnefningarferlið
Samkvæmt reglum, tilnefnir dómnefnd hvers lands í mesta lagi tvö skáldverk, fyrir þann 1. desember. Að auki má tilnefna færeysk, grænlensk og samísk skáldverk.
Við val á verðlaunaverki er litið til verka sem hafa verið gefin út í fyrsta skipti á síðustu tveimur árum. Ef um er að ræða verk á öðru tungumáli en dönsku, norsku eða sænsku þá er litið til síðustu fjögurra ára.
Dómnefndir þjóðlandanna skulu senda þrjú eintök af tilnefndum verkum til hverra hinna nefndanna. Ef þau skáldverk sem tilnefnd eru, hafa ekki verið þýdd á dönsku, norsku eða sænsku skal það gert.
