Um dómnefndina
Norræna ráðherranefndin skipar norræna dómnefnd, sem velur verðlaunahafann. Í dómnefndinni sitja 10 fullltrúar, tveir frá hverju landi; Danmörku, Finnlandi (einn finnskumælandi og einn sænskumælandi), Íslandi, Noregi og Svíþjóð.
Ef tilnefnd eru verk frá Færeyjum, Grænlandi eða samíska tungumálasvæðinu eru fulltrúar þessara svæða tilkallaðir.
Fulltrúar í dómnefnd og varamenn þeirra eru skipaðir til fjögurra ára í senn. Þeir skulu vera sérfróðir um bókmenntir eigin lands og, eins vel og unnt, er einnig um bókmenntir grannlandanna.
Tveir fulltrúar frá hverju landi auk varafulltrúa mynda dómnefnd í þjóðlöndunum.
Ákvörðun norrænu dómnefndarinnar er einföld meirihluta ákvörðun. Allir fulltrúar landana skulu vera viðstaddir til að ákvörðun sé gild. Þegar atkvæði eru jöfn er ákvörðun tekin með hlutkesti.
Í síðasta lagi tveimur vikum fyrir afhendingu skal dómnefndin tilkynna hver hlýtur bókmenntaverðlaunin og gera grein fyrir valinu. Hefð er fyrir því að dómnefnd haldi árlegan fund sinn í lok janúar og tilkynni að loknum þeim fundi hver muni hljóta norrænu bókmenntaverðlaun ársins.
