2005
Sjón
1962
2010

2005 Sjón, Ísland: Skugga-Baldur

Um höfundinn

Sjón (1962 - ) - Ísland

Sjón heitir fullu nafni Sigurjón Birgir Sigurðsson og er fæddur á Íslandi. Fyrsta ljóðabók hans kom út þegar hann var aðeins 16 ára að aldri en síðan hefur hann gefið út sjö ljóðabækur til viðbótar. Hann hefur skrifað fimm skáldsögur og samið söngtexta fyrir Björku Guðmundsdóttur.

Um vinningsverkið

Skugga-Baldur

Útgáfa: Bjartur
Útgáfuár: 2005

Skugga-Baldur er skáldsaga um íslenskan prófast og refaveiðar þar sem Sjón beitir frásagnarstíl í anda íslenskra þjóðsagna. Prófasturinn Baldur Skuggason er ein aðalpersóna sögunnar. Hann er vondur maður og skuggalegur. Önnur mikilvæg sögupersóna sem fylgir allri sögunni er undarlegt afkvæmi kattar og tófu og má þar skynja séríslenska kímnigáfu höfundar. Skugga-Baldur er stutt skáldsaga og skiptist í fáa kafla. Á sumum síðum eru aðeins nokkrar línur með miklu millibili sem leiða hugann að víðáttum íslenskrar náttúru. Efnisfastur stíllinn vegur salt á mörkum prósa og ljóðs. Skugga-Baldur er einnig samtíðarsaga þar sem siðferðisleg álitamál eru tekin fyrir. Eru hinir veikburða, fötluðu og þroskaheftu velkomnir í heim þar sem hægt er að flokka þá frá þegar í móðurkviði?

Hér er rökstuðningur dómnefndarinnar

Skugga-Baldur leikur sér á mörkum ljóðs og prósa. Skáldsagan leitar á mið íslenskra þjóðsagna og beitir rómantískum frásagnarstíl í hrífandi sögu þar sem drepið er á siðferðislegum álitamálum samtíðarinnar.

Brot

Menn brutu nú upp miðþilfarið og það innihélt ekki færri lýsistunnur en það efra; og ekki sá högg á vatni, þótt uppskipuninni væri áfram haldið af karlmannlegu kappi. En þá gerðist það að vart varð lífs á skipinu. Eitthvað bærði á sér í myrkurkrikanum við skutinn, bakborðsmegin, en þangað varð komist eftir gangvegi sem lá milli skipssíðunnar og þrefaldra tunnuhlaðanna. Þaðan bárust andvörp og stunur - og járnskeljaglamur.
Það voru furðuleg hljóð og setti mikinn óhug að mönnum. Þrír fullsterkir menn buðust til að fara inn í skuggann að gá hverju sætti. En í því að þeir ætluðu að stökkva gegn hinni óboðnu vá, á staulaðist ámátleg vera fram undan tunnustaflanum, og litlu munaði að mennirnir styngju hana og kremdu til bana með járnkörlunum, svo brá þeim við þessa sjón:
Þetta var stúlka á unglingsaldri. Dökkt hárið féll eins og villigróður af höfði hennar, hörundið var þrútið og sárt af skít; utan á sig hafði hún ekki nema þefilla pokadruslu.


(s. 57-58, Bjartur, Reykjavík, 2005)

Sjá alla tilnefnda 2005  

Danmörk

Finnland

Ísland

  • Einar Kárason - Stormur (Storm), skáldsaga
  • Sjón - Skugga-Baldur, skáldsaga

Noregur

Svíþjóð

Færeyjar

Kim Lembek, Sjóns danske oversætter, om Sjón og Skygge-Baldur