Kynning á styttunum
Norðurlandaráð hélt samkeppni um hönnun verðlaunagrips fyrir verðlaun ráðsins. Tillögur verða metnar af forsætisnefnd Norðurlandaráðs, sem mun velja vinningshafa í lok júní. Nýi verðlaunagripurinn verður afhentur verðlaunahöfum bókmennta-, kvikmynda-, tónlistar-, náttúru- og umhverfis- og barna- og unglingabókmenntaverlauna Norðurlandaráðs í fyrsta sinn á hátíðarviðburði í óperunni í Ósló, þann 30. október 2013 á Norðurlandaráðsþinginu.