Document Actions

Reglugerð um Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs

Reglugerð þessi tekur gildi þann 1. janúar 2008

§ 1 Almenn ákvæði

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs fyrir tónskáld og flytjendur tónlistar voru stofnuð af Norrænu ráðherranefndinni þann 19.apríl1989. Tónlistarverðlaunin byggja á eldri tónlistarverðlaunum fyrir skapandi tónlist, sem stofnað var til af ríkisstjórnum Norðurlandanna samkvæmt tillögu Norðurlandaráðs númer 25/1964 og voru veitt í fyrsta sinn árið 1965.

Fjármagn sem rennur til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs og umsjón með þeim kemur fram í fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir Norræna húsið í Færeyjum.

Upphæð tónlistarverðlaunanna er ákveðin við umfjöllun um fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar.

Þessari reglugerð má breyta eftir beiðni frá Norðurlandaráði eða Norrænu ráðherranefndinni.

Afnema má þessa reglugerð og þar með tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs að tillögu Norðurlandaráðs eða Norrænu ráðherranefndarinnar.

Reglugerð um tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs er samþykkt af Norrænu ráðherranefndinni (menningarmálaráðherrunum) og Norðurlandaráði.

§ 2 Tónlistarverðlaunin

Tónlistarverðlaunin eru afhent í tengslum við Norðurlandaráðsþing eða við annað tilsvarandi tilefni samkvæmt ákvörðun Norðurlandaráðs. Verðlaunin eru veitt ár hvert, annað hvert ár eru þau veitt tónskáldi og annað hvert ár tónlistarflytjendum.

Á fyrsta ári eru verðlaunin veitt fyrir tónverk samið af núlifandi tónskáldi. Ekki eru settar reglur um tegund tónlistar, en skilyrði er, að verkið standist miklar listrænar kröfur og að það teljist vera nýskapandi innan sinnar tegundar tónlistar.

Annað árið eru verðlaunin veitt litlum eða stórum hópi flytjenda eða einstökum flytjanda fyrir flutning sem einkennist af nýsköpun, miklum listrænum gæðum og færni. Við mat er gerð krafa um stöðugleika í flutningi og leggja skal áherslu á að flutningurinn geti talist nýskapandi innan sinnar tegundar tónlistar.

§ 3 Dómnefndin

Norræna ráðherranefndin skipar norræna dómnefnd sem tekur ákvörðun um verðlaunahafann. Í dómnefndinni sitja fimm fulltrúar. Samsetning dómnefndarinnar er þannig að Norðurlöndin fimm, Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð eiga hvert sinn fulltrúa. Ef tilnefning kemur frá einhverju af sjálfstjórnarsvæðanna skal fulltrúi þess taka þátt í starfi dómnefndarinnar.

Fulltrúar í dómnefnd og varamenn þeirra eru skipaðir til fjögurra ára í senn. Enginn fastafulltrúi né varamaður skal sitja lengur en í tvö fjögurra ára tímabil. Fastafulltrúar og varamenn nefndarinnar þurfa að vera sérfróðir um tónlist lands síns í ríkum mæli og einnig um tónlist grannlandanna Til þess er ætlast að nefndin fylgist vel með þeirri tónlist sem ekki á fulltrúa í nefndinni og viðhaldi sambandi við trausta kunnáttumenn á sviði þeirrar tónlistar.

§ 4 Starf

Dómnefndin kýs formann nefndarinnar. Norðurlandahúsið í Færeyjum sér um skrifstofuhald fyrir dómnefndina. 

Dómnefndin er hæf til að taka ákvarðanir þegar fulltrúar allra landanna eru viðstaddir. Einfaldur meirhluti gildir við ákvarðanatöku dómnefndar. Ákvörðun skal tekin minnst einum mánuði áður en verðlaunin eru afhent. Dómnefndin sendir ákvörðun sína til Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar samkvæmt áætlun sem Norðurlandahúsið í Færeyjum gerir. Dómnefndin skal halda einn fund fyrir hverja verðlaunaafhendingu.

Dómnefndin skal senda tilkynningu um ákvörðun sína ásamt rökstuðningi, til forsætisnefndar Norðurlandaráðs minnst þremur vikum áður en verðlaunin eru veitt.

Norðurlandahúsið í Færeyjum ber ábyrgð á því að fulltrúar í dómnefndinni fái nauðsynlegar upplýsingar til að taka ákvörðun.

§ 5. Tilnefningaferlið

Dómnefnd tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs ber ábyrgð á endanlegri ákvörðun um tónlistarverðlaunin sem tilkynnist Norðurlandaráði og Norðurlandahúsinu í Færeyjum.

Dómnefndin ákveður hver hlýtur tónlistarverðlaunin samkvæmt §2 að tillögu einstakra fulltrúa í dómnefndinni eða tillögu sjálfstjórnarsvæðanna. Einungis má tilnefna tvo frá hverju landi og einn frá hverju sjálfstjórnarsvæðanna. Tillögur sjálfstjórnarnsvæðanna skulu koma frá stjórnvöldum svæðanna.

§ 6. Stjórn og fjármál

Norðurlandahúsið í Færeyjum sér um skrifstofuhald fyrir tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs og dómnefndina og hefur umsjón með tónlistarverðlaununum.

Fjárhagsár starfseminnar fylgir almanaksárinu.

Dómnefndin skal

  • ákveða fjárhagsáætlun fyrir starfsemina og er hún ábyrg í samvinnu við aðalskrifstofu um fjárhagsstjórn
  • setja árlega áætlun um starfsemina og senda til Norðurlandaráðs.

Reikningsskil skulu gerð í samræmi við norrænar reglugerðir um fjárhagsáætlun, fjárstýringu, reikningshald og endurskoðun í samræmi við það sem ráðherranefndin annars ákveður.


 

Tengiliður

Jesper F. Schou-Knudsen
Sími: +45 33 96 03 55
Tölvupóstur: