Document Actions

Um tónlistarverðlaun

Tónlistarverðlaunum Norðurlandaráðs er ætlað að vekja athygli á tónlistarsköpun og tónlistarflutningi sem telst hafa mikið listrænt gildi. Verðlaunin eru til skiptis veitt núlifandi tónskáldum og hópum tónlistarmanna sem sýna mikla listræna og faglega færni.

Kari Kriikku

Kari Kriikku sem hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2009 (Ljósmynd: Marco Borggreve)

Ljósmyndari
Marco Borggreve

Tónlistaverðlaunin fyrir tónskáld og flytjendur tónlistar voru stofnuð 1965 og í upphafi átti að veita þau norrænu tónskáldi þriðja hvert ár. Frá og með 1990 eru verðlaunin veitt árlega; annað árið til tónskálds og hitt árið tónlistarmönnum. Frá árinu 1997 hafa sjálfstjórnarsvæðin, Færeyjar, Grænland og Álandseyjar einnig getað tilnefnt til verðlaunanna.

Annað hvert ár til tónskálds

Öll tónskáld geta komið til greina þegar verðlaunahafi tónlistarverðlaunanna er valinn. Verðlaunin eru þó aðeins veitt núlifandi tónskáldum. Verkið verður að standast miklar listrænar kröfur og teljast vera nýskapandi innan sinnar tegundar tónlistar.

Annað hvert ár til tónlistarmanna

Til þess að vera tilnefndur til verðlaunanna þegar þau eru veitt stórum eða smáum tónlistarhópum verður hópurinn að vera virkur og starfandi. Tónlistarsköpunin skal einkennast af nýsköpun, miklum listrænum gæðum og færni. Stöðugleiki í flutningi skiptir máli þegar verðlaunahafi er valinn auk þess að tónlistarhópurinn verður að geta talist nýskapandi innan sinnar tegundar tónlistar.

Dómnefnd velur verðlaunahafa

Norræna ráðherranefndin skipar norræna dómnefnd , sem ákveður hver hlýtur verðlaunin. Dómnefnd er skipuð einum fulltrúa frá hverju Norðurlandanna fimm.

Ef tilnefning kemur frá einhverju af sjálfstjórnarsvæðanna skal fulltrúi þess taka þátt í starfi dómnefndarinnar.

Norrænir tónlistarsérfræðingar í nefndinni

Fulltrúar í nefndinni skulu vera sérfræðingar í tónlist eigin lands og eins vel að sér og unnt er, í tónlist grannlandanna. Til þess er ætlast að nefndin fylgist vel með þeirri tónlist sem ekki á fulltrúa í nefndinni og viðhaldi sambandi við trausta kunnáttumenn á sviði þeirrar tónlistar.

Tillögur frá öllum Norðurlöndunum

Fulltrúar þjóðlandanna í nefndinni tilnefna til tónlistarverðlaunanna. Sjálfstjórnarsvæðin, Færeyjar, Grænland og Álandseyjar geta einnig tilnefnt til verðlaunanna. Tvær tillögur eru sendar frá hverju landi og ein fra Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum.  

Ákvörðun um hver hlýtur verðlaunin er tekin mánuði áður en þau eru veitt. Verðlaunin eru yfirleitt afhent um leið og önnur norræn verðlaun, þ.e. fyrir bókmenntir, kvikmyndir og náttúru- og umhverfisstarf við hátíðlega athöfn á hefðbundnu þingi Norðurlandaráðs,sem haldið er á haustin.

Verðlaunin sem Norðurlandahúsið í Færeyjum, hefur umsjón með eru eins og bókmenntir , kvikmyndir og náttúru- og umhverfisverðlaunin 350.000 danskar krónur (um það bil 47.000 evrur).

Margir þekktir norrænir tónlistarmenn og tónskáld hafa hlotið tónlistarverðlaunin. Meðal þeirra má nefna norsk-samísku söngkonuna Mari Boine, íslensku söngkonuna Björk, danska trompetleikarann Palle Mikkelborg, finnska tónskáldið Kaija Saariaho og sænska hljómsveitarstjórann Eric Ericsson.

 


 

Tengiliður

Jesper F. Schou-Knudsen
Sími: +45 33 96 03 55
Tölvupóstur: