Norðurlandaráð veitir árlega fimm verðlaun: Bókmenntaverðlaun, kvikmyndaverðlaun, tónlistarverðlaun, náttúru- og umhverfisverðlaun og frá árinu 2013 einnig barna- og unglingabókmenntaverðlaun. Verðlaunin nema hver um sig 350.000 danskra króna og eru afhent á Norðurlandaráðsþingi árlega.
Verðlaun Norðurlandaráðs sýna hve náið norræna menningarsamstarfið er. Markmiðið með verðlaunum Norðurlandaráðs er að vekja áhuga almennings á norrænum bókmenntum, tungumálum, tónlist og kvikmyndum. Náttúru- og umhverfisverðlaunin eru veitt fyrir sérstakt framlag til þess að gera Norðurlönd sjálfbær.
Verðlaun Norðurlandaráðs eru mikils metin á Norðurlöndum og í heiminum öllum. Bókmenntaverðlaunin eru elst þessara fimm verðlauna. Þau voru fyrst veitt árið 1962 og þá komu tónlistarverðlaunin 1965, náttúru- og umhverfisverðlaunin 1995, kvikmyndaverðlaunin 2002 og barna- og unglingabókmenntaverðlaunin 2013.