Veiting verðlauna
Ár hvert veitir Norðurlandaráð bókmenntaverðlaun, tónlistarverðlaun, kvikmyndaverðlaun og náttúru- og umhverfisverðlaun
Markmiðið með verðlaunum Norðurlandaráðs er að auka áhuga á bókmenntum, tungumálum, tónlist og kvikmyndum Norðurlandanna. Náttúru- og umhverfisverðlaunin eru veitt einstaklingum eða samtökum sem skilað hafa sérstöku framlagi til náttúru- og umhverfisverndar. Öll nema verðlaunin 350 þúsundum danskra króna.
