Hér að neðan er krækjusafn þar sem þeir sem vilja fjárfesta eða stofna fyrirtæki á Norðurlöndum geta fundið gagnlegar upplýsingar. Alþjóðlegar rannsóknir sýna árlega fram á að Norðurlöndin bjóða bestu aðstæður fyrir fyrirtæki sem vilja fjárfesta og stunda viðskipti, ástæðurnar eru margar.
Á Norðurlöndum er sterk hefð rannsókna og nýsköpunar og auk þess eru hefbundnir og stafrænir innviðir vel þróaðir. Norðurlönd bjóða hagfellt viðskiptaumhverfi og aðgang að þróttmiklum markaði – innanlands, á Norðurlöndum og í Evrópu. Upplýsingastreymið einkennist af góðu aðgengi og gagnsæi.
Norðurlönd eru einnig í fremstu röð á sviði grænnar tækni, sem spáð er að verði afgerandi samkeppnisþáttur á alþjóðlegum markaði í framtíðinni. Þar að auki er unnið að því að koma á sjálfbærri þróun á svæðinu – á sviði félags-, efnahags- og umhverfismála.
Gott er að byrja á því að hafa samband við opinberar fjárfestingarstofur á Norðurlöndum hvort sem ætlunin er að stunda viðskipti, fjárfesta eða stofna fyrirtæki.
Hér að neðan er listi yfir stofnanir sem sjá um að skrá fyrirtæki á Norðurlöndum. Á heimasíðum þessara stofnana er m.a. hægt að skrá fyrirtæki, leita í skrám og lesa meira um ábyrgðarsvið og þá þjónustu sem stofnanirnar bjóða.
Í European Business Register er hægt að leita og fá nýjustu upplýsingar um fyrirtæki í 25 Evrópuríkjum.
Stofnunin iFS aðstoðar innflytjendur við að stofna og þróa fyrirtæki í Svíþjóð. Infopankki gegnir sama hlutverki í Finnlandi.
Hér að neðan er listi yfir þær stofnanir sem sjá um skráningu einkaleyfa, vörumerkjamál og hugverkarétt á Norðurlöndum.
Nordic Patent Institute – Norræna einkaleyfastofan er samstarfsvettvangur ríkisstjórna Danmerkur, Íslands og Noregs um mál sem tengjast hugverkarétti og einkaleyfum. Nordiska patent er gagnagrunnur þar sem leita má að norrænum einkaleyfum.
Upplýsingaskrifstofan Halló Norðurlönd veitir einstaklingum og fyrirtækjum gagnlegar upplýsingar um það að búa, starfa, stunda nám og flytja milli Norðurlandanna. Einnig er hægt að hringja og fá svar við spurningum. Þá veitir Norræna ráðherranefndin einnig ókeypis upplýsingar.
Øresunddirektbusiness veitir fyrirtækjum á Eyrarsundssvæðinu upplýsingar um stofnun fyrirtækja, ráðningar starfsfólks og markaðsrannsóknir, þ.e.a.s. að eiga viðskipti á svæðinu. Þjónustan er aðallega ætluð sænskum og dönskum fyrirtækjum.
Norræna nýsköpunarmiðstöðin fjármagnar norrænar hugmyndir með það að markmiði að efla atvinnulíf og íbúa norrænu ríkjanna.
Norræni fjárfestingabankinn (NIB) fjármagnar umhverfisvæn verkefni sem stuðla að sjálfbærri þróun.
Evrópski fjárfestingabankinn (EIB) fjármagnar verkefni sem fyglja stefnu Evrópusambandsins og stuðla að sjálfbærri þróun, þróun lítilla og meðalstórra fyrirtækja og þróun betri og umhverfisvænni orkuauðlinda.
Industrifonden – Nýsköpunarsjóðurinn tengist fjölda áhættufjárfesta á sænska og norræna markaðnum. Þar er einnig að finna krækjur á stofnanir sem veita atvinnurekendum styrki og aðra aðstoð.
Hér að neðan er listi yfir krækjur á opinberar vinnumiðlanir á Norðurlöndum, sem hver um sig tengist aðilum í mismunandi atvinnugeirum.
Nordisk eTax er upplýsingagátt fyrir einstaklinga með upplýsingar um skattamál, samninga og tryggingar.
Nánari upplýsingar má nálgast hjá skattayfirvöldum í Svíþjóð, á Íslandi, í Noregi, Finnlandi, Danmörku, Færeyjum og á Grænlandi. Álandseyjar heyra undir skattayfirvöld í Finnlandi.
Tollayfirvöld í Svíþjóð, á Íslandi, í Noregi, Finnlandi og Danmörku veita mikilvægar upplýsingar til þeirra sem stunda inn- og útflutning á vörum.
Fjármálaeftirlitin í Svíþjóð, Finnlandi, á Íslandi, í Danmörku og Noregi setja reglur og sjá um eftirlit með aðilum á fjármálamarkaði.
Viðskiptaráðin í Danmörku, á Íslandi, í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi eru mikilvægur vettvangur fyrir fyrirtæki sem vilja þróa viðskiptatengsl og hafa áhrif á atvinnustefnu.
Í Svíþjóð og Noregi eru viðskiptaráðin Stockholms handelskammare annars vegar og Oslos handelskammare hins vegar, tengiliðir við svæðisbundin viðskiptaráð.
Norrænu ríkin standa fyrir mörgum reglubundnum viðburðum og vörusýningum þar sem aðilar geta hist, byggt upp tengslanet, átt viðskipti og miðlað af reynslu sinni. Fairlink er vefgátt með upplýsingum um vörusýningar og fundarstaði á Norðurlöndum.
The Nordic Exchange, Norræna kauphöllin er sameiginlegt heiti á þeim kauphöllum sem fyrirtækið OMX rekur í Stokkhólmi, Helsinki, Kaupmannahöfn, Reykjavík, Tallin, Ríga og Vilníus, en fyrirtækið var stofnað árið 2006.
First North er markaður fyrir lítil sprotafyrirtæki á Norðurlöndum og First North Baltic er markaður fyrir lítil sprotafyrirtæki á Eystrasaltssvæðinu. Norðmenn eru með eigin kauphöll sem nefnist Oslo Børs.