Á Norðurlöndum er nútímasamfélag sem byggir á einstökum náttúru- og menningararfi. Náttúruupplifun og lifandi menningarlíf, hefðir og nútíma borgarlíf laðar að fjölda ferðamanna. En myndin nær að sjálfsögðu ekki að lýsa allri þeirri fjölbreytni sem fyrir hendi er. Hér að neðan er fjöldi krækja á vefsíður einstakra norrænna ríkja með upplýsingum um það sem í boði er fyrir gesti.
Áhugaverðar staðreyndir eru á vefsíðu Norden.org upplýsingar um Norðurlönd, þar eru meðal annars upplýsingar um sögu Norðurlanda, stjórnmál, efnahagsmál, umhverfismál, kort og fleira.
Almannarétturinn veitir öllum einstakt tækifæri til að ferðast í náttúrinni og kunna ferðamenn sem ferðast og dvelja í náttúrunni vel að meta hann. Almannarétturinn er í gildi alls staðar á Norðurlöndum, nema í Danmörku. Reglur um hann eru ólíkar milli landa og þeir sem ferðast um landið bera sjálfir ábyrgð á því að kynna sér reglurnar.
Á vefsíðu Sænsku náttúruverndrastofnunarinnar er stutt yfirlit yfir almannarétt á Norðurlöndunum og greinagott safn spurninga og svara um almannaréttinn. Einnig eru þar upplýsingar um almannaréttinn á ensku og þýsku.
Upplýsingar um gengi gjaldmiðla má nálgast á vefsíðunni Oanda áður en ferð hefst.
Hér eru upplýsingar um það sem löndin hafa upp á að bjóða, hvert fyrir sig. Opinberir ferðabæklingar landanna eru góð kynning, sem gefur einfalda og skýra mynd af því sem í boði er, upplifun og náttúruperlum sem gera löndin að áhugaverðum ferðastöðum. Bæklingarnir koma einnig að góðum notum fyrir þá sem hafa áhuga á því að ferðast um og upplifa náttúruna.
Visit Sweden er opinber ferðavefur fyrir Svíþjóð. Auðvelt er að leita eftir svæðum, þar sem Svíþjóð er frekar langt og mjótt land. Einnig er hægt að setja inn leitarskilyrði eins og áhugasvið, eða hvers konar fríi þú hefur áhuga á.
Vefsíða sænsku ferðamálasamtakanna beinir sjónum að upplifun tengdri sænskri menningu og náttúru. Góð síða fyrir vistvæna ferðaþjónustu og til að finna aðra staði en þá vinsælustu.
Visit Denmark er opinber ferðavefur fyrir Danmörku. Þar gefst tækifæri á að setja inn leitarskilyrði eins og hvers konar fríi maður hefur áhuga fyrir, til að mynda virku fríi, menningu, njóta lífisins o.fl.
Visit Finland er opinber ferðavefur fyrir Finnland. Opinber vefsíða um ferðalög í Finnlandi. Veitir góða innsýn og gefur gestum færi á að koma upplýsingum um reynslu á framfæri í gegnum blogg.
Visit Norway er opinber ferðavefur Noregs. Góðar leiðbeiningar fyrir gesti þar sem skoða má á korti áhugaverðustu staði í Noregi, til að mynda áhugaverðar borgir og bæi, firði og staði sem skráðir eru á heimsminjaskjá UNESCO.
Norsku ferðamálasamtökin leggja áherslu á fjallgöngur og náttúruferðir.
Visit Iceland er opinber ferðavefur fyrir Ísland. Mjög gott yfirlit yfir þjóðgarða á Íslandi, jökla og eldfjöll og virkt menningarlíf.
Visit Faroeislands er opinber ferðavefur fyrir Færeyjar, eyjaklasann í Norður-Atlantshafi. Gagnlegar upplýsingar um það helsta sem gestum stendur til boða, meðal annars að skoða villta og fallega náttúru eyjanna.
Visit Åland er opinber ferðavefur fyrir Álandseyjar. Álandseyjar eru sjálfstjórnarsvæði, þar sem töluð er sænska, en þær tilheyra Finnlandi og hafa sinn eiginn fána. Eyjarnar eru í norðurhluta Eystrasaltsins og stærsti skerjagarður í heimi tilheyrir þeim.
Visit Greenland er opinber ferðavefur fyrir Grænland, sem er sjálfstjórnarsvæði en tilheyrir Danmörku.. Grænland er stærsta eyja í heimi, og hefur vakið athygli fyrir ferðir sem tengjast loftslagsmálum, jöklum og hvalaskoðun.
Upplýsingar um norrænu höfuðborgirnar. Á þessum vefsíðum eru, auk almennra upplýsinga, oft yfirlit yfir það sem er á döfinni, sýningar og upplifun sem boðið er upp á í borgunum.
Stockholm town er opinber ferðavefur fyrir Stokkhólm, höfuðborg Svíþjóðar.
Allt um Stokkhólm er handhæg ferðahandbók um Stokkhólm með greinum, upplýsingum um veitingastaði og upplifun ásamt yfirliti yfir það helsta sem er á döfinni, leiklist, menningu og útivist.
Visit Copenhagen er opinber ferðavefur fyrir Kaupmannahöfn höfuðborg Danmerkur og nærliggjandi svæði.
Allt um Kaupmannahöfn er ferðahandbók um Kaupmannahöfn og nærliggjandi svæði. Einnig með yfirliti yfir það sem er á döfinni í útilífi borgarinnar, leikhúsum og menningarlífinu.
Visit Helsinki er opinber ferðavefur fyrir Helsinki höfuðborg Finnlands og nærliggjandi svæði.
Visit Oslo äer opinber ferðavefur fyrir Ósló höfuðborg Noregs og nærliggjandi svæði.
Oslopuls er ferðahandbók um Ósló og nærliggjandi svæði. Einnig með yfirliti yfir það sem er á döfinni í útilífi borgarinnar, leikhúsum og menningarlífi.
Visit Reykjavik er opinber ferðavefur fyrir Reykjavík höfuðborg Íslands.
Hér má sjá aðra sýn á það sem hægt er að upplifa á Norðurlöndum Á þessari vefsíðu má skoða það áhugaverðasta á Norðurlöndum utanfrá, jafnframt því að þar eru oft gagnlegar og áhugaverðar krækjur, ferðaráð og vettvangur til umræðu.
Vefsíða About.com Scandinavia Travel er umfangsmikil og metnaðarfull vefsíða, sem rekin er af Terri Mapes, þekktum bandarískum blaðamanni sem hefur mikla ást á Skandinavíu. Bakgrunnsupplýsingar, ferðaráð, það helsta á döfinni og mikið safn krækja. Tungumál: Enska.
Go Scandinavia er ferðavefur skandínavísku ferðamálaskrifstofunnar ætluð Bandaríkjumönnum. Einnig með upplýsingum um Ísland og Finnland. Tungumál: Enska.
Visit Scandinavia er ferðavefur skandínavísku ferðamálaskrifstofunnar fyrir Ástrali, megináhersla á Danmörku, Svíþjóð og Noreg.