Document Actions

Að ferðast með gæludýr til Danmerkur

Eftirfarandi eru upplýsingar um reglur sem gilda fyrir þá sem hyggjast ferðast með gæludýr til Danmerkur. Og einnig hvaða reglur gilda um ferðir með gæludýr milli Sjálands og Borgundarhólms með viðkomu í Svíþjóð.

Hund i bil, Helsingfors
Ljósmyndari
Karin Beate Nøsterud/norden.org

Að flytjast til Danmerkur með gæludýr meðferðis

Leyfilegt er að flytja til Danmerkur hunda, ketti og merði frá ESB-ríkjum, auk Íslands og Noregs ef eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:

  • Að dýrið sé merkt með örmerki eða húðflúri.
  • Að dýrið hafi ESB-dýravegabréf, sem gefið er út af löggildum dýralækni.
  • Að dýrið sé með gilda bólusetningu við hundaæði. Að bólusetningin hafi farið fram a.m.k. 21 degi fyrir brottför til Danmerkur.

Nánari upplýsingar hjá Matvælastofnun Fødevarestyrelsen.

Ef flutt er með hund til Danmerkur

Í Danmörku er skylt að merkja og skrá alla hunda í hundaskrá Dansk Hunderegister áður en þeir ná 8 vikna aldri.

Hundaeigendum ber skylda til að tryggja hunda sína. Tryggingin gildir ef hundurinn veldur tjóni á einstaklingum eða hlutum.

Nánari upplýsingar um hundatryggingar fást hjá upplýsingamiðstöð tryggingamála (Forsikringsoplysningen).

Ákveðnar hundategundir eru bannaðar í Danmörku. Nánari upplýsingar um hvaða tegundir um er að ræða fást hjá dómsmálaráðuneytinu.

Frí og stuttar ferðir með gæludýr

Ef einstaklingur hyggst hafa með sér hund eða kött í frí til Danmerkur, gilda sömu reglur og þegar flutt er til landsins.

Nánar um reglurnar á vefsíðu Matvælastofnunar Fødevarestyrelsen.

Vilji einstaklingur ferðast til vinnu með hund eða kött milli Danmerkur og annars norræns ríkis skal fylgja eftirfarandi reglum:

  • Reglum um innflutning á hundum og köttum til Danmerkur. Þ.e.a.s. örmerking, dýravegabréf og gild bólusetning við hundaæði.
  • Reglum um innflutning á hundum og köttum til þess lands sem viðkomandi hyggst ferðast til vinnu í. Ef viðkomandi ferðast til vinnu milli Danmerkur og Svíþjóðar skal hann hafa meðferðis svokallað 4-vikna vottorð. Það vottorð er vegna ormameðferðar. Nánari upplýsingar um 4-vikna vottorðið og umsóknareyðublað er á vefsíðu: Jordbruksverket.

Ferðast með dýr í gegnum Svíþjóð

Ef einstaklingur ferðast með gæludýr í gegnum Svíþjóð á milli Borgundarhólms og annarra hluta Danmerkur skal hafa eftirfarandi reglur í huga:

  • Einungis má ferðast á leiðinni Helsingjaborg - Ystad eða Lernacken (Eyrarsundsbrúin) - Ystad og dýrið skal flytja beint frá Ystad til Borgundarhólms. Sömu reglur gilda um heimferð.
  • Dýrið má ekki hafa verið í öðrum ríkjum en ESB- eða EES-ríkjum á síðustu 6 mánuðum.
  • Framvísa skal pöntun í ferjuna frá Ystad til Borgundarhólms.
  • Dýrið má ekki undir neinum kringumstæðum yfirgefa farartækið eða hafa samneyti við önnur dýr á meðan á ferðinni stendur.
  • Dvöl í Svíþjóð má ekki vera lengri en 4 klukkustundir.
  • Dýrið skal vera örmerkt.
  • Dýrið skal hafa verið ormahreinsað innan við 10 dögum fyrir brottför. Sjá krækju að ofan um 4-vikna vottorð.
  • Eigandi dýrsins skal fylla út innflutningstilkynningu. Eyðublaðið er á vefsíðu Tollstjóra Tullverket.
Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Samtök)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.